Haus
Innsigli Jóns Jónssonar og Jóns Sn. Norðfjörðs. Innsigli Jóns Jónssonar og Jóns Sn. Norðfjörðs.

Innsigli Jóns Jónssonar Í innsigli Jóns Jónssonar er nafn hans skrifað fullum fetum. Leturgerðin er dæmigerð fyrir 19. öld og fram á þá 20.

Innsigli Jóns Norðfjörð Innsigli Jóns Norðfjörð er með ákaflega vel gerðum upphafsstöfum. Hér er upphafsstafurinn J og svo Norðfjörð skrifað að fullu.

Innsigli Páls Árnasonar Innsigli Páls Árnasonar.

Innsigli Þ. Sk. Sívertsen Innsigli Þ. Sk. Sívertsen.

Innsigli Sigurðar Siguðarsonar lögþingsskrifara Innsigli Sigurðar Sigurðarsonar lögþingsskrifara.

Einkainnsigli

Auk innsigla sem kalla má opinber eða embættisinnsigli má tala um einkainnsigli. Þessi innsigli eru oft með nöfnum eða upphafsstöfum eigendanna. Innsiglin er jafnan skrautlaus og þungamiðja þeirra er nafn eigandans ritað fullum fetum, stytt eða jafnvel einungis með upphafsstöfum þess sem innsiglið á. Þessi innsigli eru á síðari tímum oft sporöskjulöguð til að skapa meira rými fyrir nafnið.

Jón og Jón

Þetta er staðfesting tveggja stefnuvotta í Hraunhreppi á Mýrum árið 1907, þeirra Jóns Jónssonar og Jóns Sn. Norðfjörðs. Þar segir m.a.: „Þetta vottum vér samkvæmt stefnuvotta eiði okkar og staðfestum með nöfnum okkar og ynnsyglum.“ Sama letur og samskonar rammi er í báðum innsiglum sem gætu verið smíðuð af sama manni.

Páll Árnason

Í upphafi 20. aldar vottaði Páll Árnason innihald bréfs með undirskrift sinni og innsigli. Hér eru bæði nöfn eigandans tengd saman, ofan og neðan, með flúri og auk þess endar n-ið í son i skrauti sem fyllir flötinn neðan nafnsins. Allt haglega gert.

Þ. Sk. Sívertsen

Þ. Sk. Sívertsen, líklega Þorvaldur Skúlason Sívertsen í Hrappsey (1859-1919), setti þetta innsigli sitt undir nafn sitt sem stefnuvottur 1909. Innsiglið er frábrugðið ofangreindum innsiglum að lögun og gerð. Á munstruðum grunni er þríhyrndur skjöldur með upphafsstöfum eigandans. Stafirnr eru óljósir en virðast vera Th og S.

Sigurður Sigurðarson

Innsigli Sigurðar Sigurðarsonar lögþingsskrifara til staðfestu afriti dóms frá árinu 1745, sem upplesinn var yfirréttinum við Öxará 1746. Innsiglið er á vissan hátt dæmigert innsigli löggæslumanns konungsvaldsins á einveldistímanum. Fyrirferðamest er vog réttlætisins á skildi. Og ofan á skildinum er hjálmur. Flúrið er afsprengi barroks. Efst má greina þrjá bókstafi, þrjú S sem eru upphafsstafir eigandans, Sigurðar Sigurðarsonar.