um vegi og vegleysur - syndandi

akandi | gangandi | hjólandi | ríðandi

Sundkappar

Það má segja að sund sé ein tegund af ferðamáta og hafa þó nokkuð margir tekið sér það fyrir hendur að synda yfir Eyjafjörðinn. Eftirfarandi ellefu manns unnu þetta afrek á árunum 1907-1938.

Karl Hannesson, húsgagnasmiður og málari á Akureyri synti 14. júlí 1907 á sunnudagsmorgni frá Oddeyrartanganum og yfir á 35 mín.

Lárus Rist, sundkennari synti, samkvæmt heitstrengingu veturinn áður þar um, yfir Oddeyrarál 6. ágúst 1907. Hann henti sér út í í öllum fötum og tíndi af sér á leiðinni, var 34 mínútur í sjónum, (viðstaddir læknar sögðu 35 mín., en nemendur Lárusar 25 mín. og þótti Lárusi það líklegra).

Jóhann Ólafsson trésmiður, Arngrímur Ólafsson prentari og Kristján Þorgilsson frá Sökku, allir ættaðir úr Svarfaðardal syntu laugardaginn 18. júlí 1908 yfir Oddeyrarál, þeir voru nemendur Lárusar Rist. Jóhann synti á 24 mín. 15.sek., en hinir á 25 mín. 30 sek.

Sigríður F. Hjartar, 18 ára stúlka, synti yfir Oddeyrarál sunnudaginn 11. júní 1933 á 21 mín. og 20 sek. Sigríður lærði sund á Vestfjörðum, en æfði í Laugaskóla veturinn fyrir sundafrekið.

Guðmundur Matthíasson úr Grímsey synti yfir fjörðinn, af Oddeyrartanga, laugardaginn 26. ágúst 1933 á 22 mín.

Haukur Einarsson og Sigurður Runólfsson, báðir frá KR syntu yfir Oddeyrarálinn þriðjudaginn 10. júlí 1934. Synti Haukur á 19. mín. 8 sek. en Sigurður á 20 mín. 2 sek.

Árni Bjarnarson bifreiðast. frá Pálsgerði, síðar bóksali og bókaútgefandi á Akureyri synti þriðjudaginn 28. ágúst yfir Oddeyrarál og til baka aftur. Hann var 24 mín austur yfir en 36 mín til baka. Árni var fyrstur til að synda báðar leiðir í einni lotu.

Pétur Eiríksson, sundkappi úr Reykjavík, synti 18. ágúst 1938 yfir Oddeyrarál á 18 mín. 33 sek. um 850 m. Hann synti svo aftur viku síðar, eða 25. ágúst, úr Veigastaðabás að Torfunefsbryggju, röska 2 km. á 38 mín og var fyrstur manna til að synda þá leið.

Nánari lesning:

  • Norðurland 20. júlí 1907
  • Norðurland 9. ágúst 1907
  • Norðurland 18. júlí 1908
  • Dagur 15. júní 1933
  • Íslendingur 16. júní 1933
  • Alþýðumaðurinn 12. júní 1933
  • Íslendingur 1. sept. 1933
  • Íslendingur 13. júlí 1934
  • Íslendingur 31. ágúst 1934
  • Íslendingur 26. ágúst 1938

Jón Hjaltason, 2000. Saga Akureyrar 3. bindi. Akureyrarbær, Akureyri.

 
sundkappar
Arngrímur Ólafsson, Kristján Þorgilsson, Jóhann Ólafsson syntu yfir Eyjafjörð 18. júlí 1908. Jón Hjaltason, 2000. Saga Akureyrar 3. bindi. Akureyrarbær, Akureyri.
frétt
Norðurland 18. júlí 1908.