Þjóðskjalasafn Íslands
Sýning á lestrarsal opin 11:00-14:00 á skjaladaginn og síðan á venjulegum opnunartíma lestrarsalar til 28. febrúar 2007. Sýnd verða skjöl um stofnun símans.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Í safninu stendur nú yfir sýning á skjölum úr einkaskjala-safni Hjörleifs Hjörleifssonar, skjöl sem segja má að hafi verið dýrgripir fjölskyldu Hjörleifs og sýna mikilvægi þess að halda til haga skjölum einstaklinga. Sýningin er opin kl. 10-16 virka daga og aðgangur ókeypis.
Í forkirkju Hallgrímskirkju stendur yfir sýningin „... hér er hlið himinsins“ sem er samstarfsverkefni Borgarskjala-safns Reykjavíkur, Sóknarnefndar Hallgrímskirkju og Listvinafélags kirkjunnar í tilefni af 20 ára vígsluafmæli kirkjunnar 26. okt. sl. Sýningin er opin alla daga milli 9 og 17. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Héraðsskjalasafn Kópavogs
Sýning á Bókasafni Kópavogs á ýmsum skjölum er varða Strætisvagna Kópavogs auk ljósmyndasýningarinnar Á ferð um Kópavog. Þessar sýningar verða aðgengilegar á opnunartímum bókasafnsins á tímabilinu 11. - 17. nóvember 2006.
Héraðsskjalasafn Akraneskaupstaðar
Sýning á póstkortum úr safni Jóhönnu Þorgeirsdóttur verður opin á skjaladeginum á opnunartíma bókasafnsins kl 11:00-14:00.
Héraðsskjalasafnið Ísafirði
Sýning á skjölum og myndum tengdum djúpbátunum verður opin kl 13:00-16:00 á skjaladeginum og verður síðan opin í viku á venjulegum opnunartíma safnahússins á Eyrartúni (Gamla sjúkrahússins).
Héraðsskjalasafnið á Akureyri
Sýning í anddyri Héraðsskjalasafnsins á veggspjöldum af skjölum og myndum sem tengjast samgöngum undir slagorði skjaladagsins „á ferð“ verður opin kl 12:00 - 17:00 á skjaladeginum og síðan á opnunartíma safnsins út nóvember. Einnig verður sýning á frumskjölunum á anddyri bæjarskrifstofu Akureyrar, Geislagötu 9 út nóvember, en hún verður ekki opin á skjaladeginum.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Verður opið á skjaladaginn frá 13:00-17:00. Í anddyri safnsins gefur að líta ljósmyndasýninguna „Brot úr sögu bílaaldar“, þar sem bifreiðin er aðalhlutverki. Einnig eru sýnd skjöl sem málið varða, svo sem umsóknir um bifreiðakaup, ábyrgðir vegna kaupa á „sjálfrenningi“, ökuskírteini frá fyrri tíð o.fl. Heitt verður á könnunni og boðið upp á „Sæmund“ bæði í hvunndags- og sparifötum.
Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
Safnið tekur þátt í „Nótt safnanna“ og setur upp sýningu í flugstöðinni í Vestmannaeyjum í samvinnu við Ljósmyndasafn Vestmannaeyja, Byggðasafn Vestmannaeyja og starfsmenn flugmálastjórnar í Eyjum í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því að flugvöllurinn þar var tekinn í notkun og áætlunarflug hófst til Eyja. Sýningin verður opnuð á skjaladaginn og stendur uppi til áramóta.
Héraðsskjalasafn Árnesinga
Sýning á sýslunefndarskjölum sem opnuð var um miðjan maí 2006 verður opin fram á útmánuði næsta árs á venjulegum opnunartíma safnsins, en verður ekki opin sérstaklega á skjaladaginn.