Árið 1856 lögðum við 4ir upp á sunnudaginn í miðgóu suður Eyfirðinga... suður í Hreppa og Biskupst. til að kaupa hunda því hér höfðu gengið hundapestir og flestir hundar drepist.
Fyrsta daginn héldum við suður í syðri Polla í góðu veðri og björtu. Þar settumst við að á ásunum vestan við Polla og lágum þar á mel um nóttina í norðan rennings hríð. Næsta morgun var bjart veður og þá héldum við af stað og vestur fyrir jökulinn og þegar við komum á Lambahraunsbrúnina þá þóttist Sigurður sál. sjá í Bláfellshálsinn og í Lambabrekkum skildum við eftir nokkuð af nesti okkar því við héldum að við mundum komast alla leið suður á svo sem 2 dögum ef allt gengi vel. En þegar leið á daginn þá fór að dimma að með hríð og gerði stórhríð undir kvöldið ...
„... að lokum náðum við til byggða og komum þar að bæ sem Upp-Hólar eru nefndir og var það síðla dags. Þegar við komum þar heim komu þar út 3 karlmenn og eins og títt er spurðu þeir okkur til nafns og hvaðan við værum, og var að sjá svo sem þeim hnykkti við er þeir heyrðu að einn okkar hét Randver og var frá Jökli og var Sig. djarfmæltur eins og ferðamanna er siður og sagði frá hvernig var ástatt fyrir okkur, að við værum búnir að vera matarlausir í 2
sólarhringa og þyrftum við því mat og annan greiða, þegar við komum svo inn og fórum úr vosklæðum var skinnið svo núið af fótunum að skein í berar sinarnar aftan á fótkálfunum og fékk Sig. heimafólkinu allan farangur okkar, svo það hefði ekkert að óttast af okkar hálfu, þar var okkur svo veittur góður beini og vorum við þar um nóttina í góðu yfirlæti...“
Þessar glefsur eru úr handriti sem komið er úr fórum fegðanna Kjartans Júlíussonar og Júlíusar Jakobssonar frá Skáldstöðum. Handritið er með tvenns konar rithöndum. Sögumaður heitir Bjarni en samferðamenn hans voru Randver frá Jökli, Sigurður sálugi og Helgi sálugi. Í byrjun gekk allt vel en svo versnaði veðrið og bæði Helgi og Randver áttu í erfiðleikum með að ganga. Eftir hrakninga á hálendinu komu þeir á 6. degi til byggða í Biskupstungum. Þegar þeir félagar höfðu safnað hundum og keypt hesta lögðu þeir af stað heimleiðis. Það var á skírdagsmorgun. Heimferðin gekk mun betur og komust þeir heim í Eyjafjörð að morgni páskadags.
G-173/77 Úr fórum Júlíusar Jakobssonar og Kjartans Júlíussonar Skáldstöðum Ferðasagan birtist í Nýjum kvöldvökum 1915 og einnig í Hrakningar og heiðavegir IV. bindi en þar er frásögnin ekki alveg eins og hér.