Árið 1899 kom bókin Nýjasta barnagullið út í Kaupmannahöfn. Útgefandinn var Oddur Björnsson, sem síðar fluttist til Akureyrar og gaf út fjölda bóka. Bókin er bæði skemmtiefni fyrir börn og ekki síður fræðandi. Á blaðsíðu 49 er sagan Á tvýli undan tígrisdýri. Upphaf sögunnar er svona:
Einhverju sinni var Grímur á ferð um skóg. Vegur var um skóginn ekki sem beztur, en þó farandi. Grímur var á tvýli. Tvýli* er akfæri með tveimur hjólum og eru hjólin hvort fram af öðru, en ekki jafnhliða sem á vagni. Situr maðurinn á því í nokkurs konar hnakk. Hann styður fótunum á víxl á ástöðin, og þá snúast hjólin um ásana og tvýlið veltur áfram. Að fara á tvýli köllum vér að tvýla.
*Orðið tvýli er stytt úr tví-hýli. Hýli er dregið af hjól (hljóðvarp). Hýli heita yfir höfuð akfæri á hjólum er stigin eru áfram, af einum (eða fleiri), að fara á hýli heitir að hýla. Svipað akfæri og tvýli með þremur hjólum heitir þrýli (stytt úr þrí-hýli). Að fara á þrýli heitir að þrýla.