um vegi og vegleysur - ríðandi

akandi | gangandi | hjólandi | syndandi

Endurminning frá stríðsárunum

Það var morgun einn í júnímánuði árið 1940 að ég lagði af stað frá æskuheimili mínu að Torfufelli í Eyjafirði áleiðis til Grundar til að sinna frjárrekstri með skyldfólki mínu á bænum. Var ætlunin að reka féð yfir að Illugastöðum í Bleiksmýrardal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hlakkaði ég mikið til enda hafði ég minn uppáhaldsreiðskjóta með í för, hana Eldingu mína, brúna meri sem síðan hefur alið mikið af góðum reiðhestum. Einnig var mér það mikið tilhlökkunarefni að hitta hana Aðalsteinu frænku mína og jafnöldru, en við stöllurnar ætluðum báðar með í ferðina.

En eitt var það sem íþyngdi huga mínum og gerði mér fyrsta spölinn jafnvel dálítið þungbæran. Á Melgerðismelum, sem eru nokkurn veginn miðja vegu milli Torfufells og Grundar, héldu til fleiri tugir breskra hermanna sem ekki vildu hleypa nokkrum manni hjá án þess að fá einhverjar upplýsingar um ferðir hans og voru sennilega að svipast um eftir þýskum njósnurum.

Eftir því sem ég nálgaðist melana sá ég betur og betur þvílík umsvif þarna voru á ferð. Þarna var fjöldi bragga, tjöld og brjósthlífar hlaðnar upp af sandpokum. Við veginn var síðan tjald og við það tveir vopnaðir hermenn, sem stoppuðu mig og voru greinilega að spyrja mig að einhverju á þessu framandi tungumáli sínu. Þar sem ég skildi ekki stakt orð af því sem þeir sögðu, var ég að hugsa um að ríða áfram eins og ekkert hefði í skorist, en í því tók ég eftir manni sem kom hjólandi í áttina til okkar. Það reyndist vera Angantýr

Hjálmarsson, maðurinn sem átti síðar eftir að verða eiginmaður minn og lífsförunautur. Hann fullvissaði mig um það að ef ég myndi ríða áfram væru þeir vísir með að skjóta á eftir henni Eldingu minni. Nú voru góð ráð dýr, því ekki vildi ég hætta á að besta og eina hrossið mitt yrði fyrir skoti. Svo að loksins reyndi ég eftir fremsta megni að útskýra fyrir hermönnunum á mínu ástkæra ylhýra að ég væri á leiðinni út að bænum Grund til að taka þátt í fjárrekstri. Þeir virtust láta það gott heita og hleyptu mér framhjá.

Síðari hluta leiðarinnar í Grund virtist fljótfarinn og gisti ég þar yfir nóttina. Morguninn eftir hófst síðan reksturinn, sem gekk brösuglega og var orðið framorðið þegar við komum í Illugastaði. Síðasta spölinn vorum við Aðalsteina mjög þreyttar og var ég oft við það að sofna sitjandi í hnakknum...Við gistum svo að Illugastöðum um nóttina. Leiðin til baka í Grund reyndist mjög ævintýraleg í marga staði, og meðal annars urðum við að sundríða yfir Eyjafjarðarána sem hafði vaxið mjög í vorleysingum. Á fjórða degi reið ég síðan aftur heim í Torfufell, og man ég ekki hvernig fundum mínum við bresku soldátana lauk þann dag. Þá var komið að lokum viðburðaríkrar ferðar og var ég orðin mjög þreytt eftir fjögurra daga setu á hestbaki.

Torfhildur Jósepsdóttir
Hjörvar Pétursson skráði

G-175/17 Úr fórum Angantýs Hjörvars Hjálmarssonar.

 

Hestaferðalag
Mynd úr hestaferðalagi. Ljósmyndari og tilefni ekki þekkt. Hskj.Ak. F-128/228 Hestamannafélagið Léttir.

kappreiðar
Kappreiðar á bökkum Eyjafjarðarár 1961. Ljósmyndari ekki þekktur. Hskj.Ak. F-128/228 Hestamannafélagið Léttir.


Öskudagur
Hópreið hestamanna á öskudaginn. Ár og ljósmyndari ekki þekkt. Hskj.Ak. F-128/228 Hestamannafélagið Léttir.