Um sumarið 1907 tók Magnús Sigurðsson á Grund þá ákvörðun að láta kaupa fyrir sig flutningabíl í Þýskalandi. Jón Sigurðsson frá Hellulandi hafði lært vélfræði í Þýskalandi og sá um kaupin fyrir Magnús. Bíllinn kom til landsins í nóvember.
Bíllinn var flutningabíll af N.A.G. gerð og var framleiddur í Berlín. Hann hafði verið í eigu þýskrar súkkulaðiverksmiðju sem hafði látið byggja yfir hann einangraða yfirbyggingu. Bíllinn var mjög þungur, eða um 3,9 tonn og vó yfirbyggingin ein 1,2 tonn. Var hún mannhæðarhá, járnklædd að utan og innan og einangruð með timbri og korki. Bíllinn var 8 eða 9 hestöfl, sem þýddi það að hámarkshraðinn fór ekki yfir 20 km/klst.
Tilgangur Magnúsar með bílkaupunum var að auðvelda vöruflutninga til og frá Grund. Þrátt fyrir komu bílsins var samt áfram notast við hestvagna því bíllinn annaði ekki nema hluta af flutningnum. Bæði var bíllinn þungur og seinn í förum en lélegur vegur og dekkjavandræði gerðu einnig strik í reikninginn. Þegar vegurinn var blautur tók allt að þrjár klukkustundir að koma bílnum þessa 20 km sem eru milli Grundar og Akureyrar og þurfti þá oft að losa af honum farminn og jafvel ýta honum upp brekkur.
Síðla árs 1909 ákvað Magnús að hætta að nota bílinn og stóð hann óhreyfður heima á hlaði á Grund til ársloka 1912. Þá var hann seldur til Kaupmannahafnar.
Örn Sigurðsson, Ingibergur Bjarnason, 2003: Íslenska bílaöldin. Forlagið, Reykjavík.