|
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar mun að þessu sinni fara í samstarf með 6. bekkjum í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Ætlunin er að krakkarnir velji sér eina íþróttagrein innan Ungmennafélagsins Aftureldingar. Verður hægt að velja úr 5-6 greinum; handbolta, knattspyrnu, skák, frjálsum íþróttum og leiklistarstarfsemi sem ungmennafélagið var mjög virkt í á árum áður. Krakkarnir fá gamlar greinar úr afmælisritum Aftureldingar, 50, 70 og 90 ára afmælum. Héraðsskjalavörður ætlar að skanna nokkuð af ljósmyndum sem eiga við hverja grein og þau munu síðan setja saman eina vefsíðu um þá grein sem þau hafa valið með texta og gömlum ljósmyndum. Síðan verður valin ein síða og hana má sjá hérna. Héraðsskjalasafnið mun svo hafa allar síðurnar sýnilegar undir síðu skjalasafnsins www.mos.is. |
|
|
|