Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar![]() Á páskadegi 1909 var stofnfundur ungmennafélags Aftureldingar í Lágafellssókn haldin í þinghúsinu að Lágafelli í Mosfellsveit. Stofnendur voru 46, en frumhvæði að stofnun félagsins átti Steindór Björnsson frá Gröf og systkini hans. Á þessum árum varð mikil þjóðernisvakning meðal ungs fólks á Íslandi og snerist hún um þá hugsjón, að sérhverjum einstaklingi bæri að rækta sál og líkama til þess að geta unnið "Ísland allt" með sem bestum árangri. Fyrsta íþróttamót Aftureldingar var háð á Kollarfjarðareyrum 30. júní árið 1912. Þetta mót verður að teljast einhver merkasti viðburðurinn í sögu íþróttamanna í héraðinu. "Grímur Norðdal, sem þá var formaður Aftureldingar, hafði ekkert hugboð um að ég (Janus Eiríksson) gæti hlaupið, og þar sem þá vantaði mann í 100m hlaup og hástökk, bað hann mig að hlaupa í skarðið. Árangurinn var furður góður varð nr 2 í 100 og 3. í hástökki. Ég man tímann, 100 m á 13 sek, sléttum og 1,46 m í hástökki. Brautin var óskaplega holótt og öll í kúaslettum. Árið eftir var svo aftur keppni á milli Aftureldingar og Drengs, að þessu sinni í Tjaldanesi".Anna, Dagbjört, Hjördís og Kristín. |
|