Héraðsskjalasafn Akraneskaupstaðar Heiðarbraut 40 300 Akranes Sími: 431 3271 Fax: 433 1201 Rafpóstur Veffang Ljósmyndasafns Akraness Afgreiðslutími: Þriðjudaga frá kl. 16-19 og fimmtudaga frá 13-16. |
|
Bæjarstjórn Akraness ákvað á árinu 1992 (50 ára afmæli Akraneskaupstaðar), að hefja undirbúning að stofnun héraðsskjalasafns og var það stofnað formlega í apríl árið eftir. Umdæmi safnsins er Akraneskaupstaður og er það til húsa í Bókasafni Akraness en um langt árabil voru skjalageymslur Akraneskaupstaðar þar í kjallaranum. Héraðsskjalasafnið hefur skrifstofu á 2. hæð og aðgang að Lesstofu bókasafnsins fyrir gesti sína. Halldóra Jónsdóttir var fyrsti héraðsskjalavörður og stýrði hún undirbúninginum að stofnun safnsins og stofnuninni til ársins 1998. Þórunn E. Sighvats var ráðin til safnsins það ár sem skjalavörður og starfaði hún við safnið þar til í ársbyrjun 2000. Núverandi forstöðumaður skjalasafnsins er Kristján Kristjánsson. Sjá umfjöllun um Ljósmyndasafn Akraness |