Norrænn skjaladagur
Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember.
Ákveðið var að annað hvert ár skyldi dagurinn helgaður sameiginlegu þema. Þess á milli hafa söfnin frjálsar hendur.
Mörg skjalasöfn opna hús sín fyrir almenningi á þessum degi og vekja athygli á tilteknum skjalaflokkum, oft með því að setja upp sýningar á völdum skjölum.
Í ár er þema skjaladagsins hjá flestum skjalasöfnum líkami, heilsa og íþróttir, undir kjörorðinu: Er heilsu haldið til haga? Þessi orð eiga að vekja fólk til umhugsunar um hvort skjöl á þessu sviði þjóðlífs séu tryggilega varðveitt á skjalasöfnum þannig að saga heilsufars og íþrótta geti verið rannsökuð og skráð svo dæmi sé tekið. Kjörorðið vísar jafnframt til þeirrar ábyrgðar okkar að gæta heilsunnar.
Þótt lög gildi um opinbera skjalavörslu er ekki nægilega áréttað að einstaklingar í félögum, stofnunum og fyrirtækjum ráða miklu um hvað verður um gögn sem þeir vinna með eða varðveita. Eitt markmiða skjaladagsins er að efla vitund fólks um að skjalasöfin séu tryggir vörslustaðir skjala af hvaða tagi sem er. Fundargerðabækur, bréf, myndir og fleiri skjöl eiga erindi á skjalasöfn. Og því er fólk hvatt til að hafa samband við næsta héraðsskjalasafn eða Þjóðskjalasafn ef það hefur undir höndum skjöl sem það veit ekki hvað gera á við.
Fyrri skjaladagar