Héraðsskjalasafn Siglufjarðar Gránugötu 24 580 Siglufjörður Sími: 460 5615 Fax: 467 1589 Rafpóstur Héraðsskjalasafn Siglufjarðar mun hafa til sýnis, föstudaginn fyrir skjaladaginn gögn frá íþróttafélögum í bænum. Við munum þó ekki opna sérstaklega á laugardeginum sjálfum. |
|
Héraðsskjalasafn Siglufjarðar er í Ráðhúsi Siglufjarðar og deilir húsnæði með bókasafninu. Við erum mest með gögn frá sveitarfélaginu, en einnig er eitthvað hér af gögnum frá félagasamtökum t.d. fundargerðabókum. Safnið varðveitir lítið af einkaskjölum, þó eigum við eitthvað af skjölum frá sr. Bjarna Þorsteinssyni tónskáldi og þjóðlagasafnara sem var prestur á Siglufirði. En í bókasafninu er til húsa Bjarnastofa, til heiðurs sr. Bjarna. |