Þjóðskjalasafn Íslands Opið hús í Þjóðskjalasafni Íslands Þema skjaladagsins í ár er líkami, heilsa og íþróttir undir kjörorðinu Er heilsu haldið til haga? Kjörorðið vísar til þess hlutverks samfélagsins að varðveita heimildir um sögu sína. Skjöl um sögu heilsufars og íþrótta eru því í brennidepli í ár. Kjörorð dagsins á jafnframt að vekja okkur til umhugsunar um hvort við sem einstaklingar og þjóð varðveitum eða gætum heilsu okkar. Þjóðskjalasafn hefur unnið með starfsfólki Landlæknisembættisinsað undirbúningi skjaladagsins í ár. Starfsmenn beggja embætta hafa undanfarna mánuði skipulagt daginn. Uppskeruna má sjá og heyra milli kl. 11 og 15 þann 8. nóvember en þá er Þjóðskjalasafnið opið almenningi. |
||
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar dagskrá8. nóvember. |
Skoða myndir frá skjaladeginum -> | |