|
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Opnun sýningarinnar á Norrænum skjaladegi heppnaðist ágætlega. Opið var frá 13-17 og tíndust síðustu gestirnir út þegar farið var að halla á sjötta tímann. Um fjörutíu gestir létu sjá sig yfir daginn og virtust skemmta sér vel yfir myndum og minningum. Einna mestu athyglina fékk myndband Óskars Þórs Óskarsson en það hefur að geyma gömul myndskeið frá stóðréttum og Faxaborg í bland við vel valdar myndir af kunnum Faxafélögum. Í tilefni dagsins afhenti Ómar Arason skjöl úr fórum föður síns, Ara Guðmundssonar, sem varða Hestamannafélagið Faxa. Ari Guðmundsson (1895-1959) var einn af stofnendum hestamannafélagsins og gegndi formennsku félagsins í 22 ár. Ari kenndi sig gjarnan við Skálpastaði í Lundarreykjadal. Hann starfaði lengst af sem vegaverkstjóri í Borgarfirði og árið 1943 tók hann við yfirstjórn vegamála í öllu Borgarfjarðarhérði, norðan Skarðsheiðar. Ari vann mjög ötullega að ýmsum félagsmálum; hann kom að stofnun ýmissa mikilhæfra félagasamtaka, bæði í héraði og á landsvísu, og gegndi oftar en ekki formennsku þeirra. Þá lét hann til sín taka við stjórnsýslustörf og sinnti bæði nefndar- og trúnaðarstörfum. Eftir Ara liggur fjöldi ritverka sem hafa birst víða í bókum, blöðum og tímaritum. Í skjalaafhendingu Ómars Arasonar er m.a. að finna úrval greina eftir föður hans, í frumriti, og hafa sumar hvergi birst á prenti. Skjöl Ara Guðmundssonar er mikill fengur fyrir skjalasafnið og þá ekki síst vegna þess að til stendur að rita sögu Hestamannafélagsins Faxa. Sýningin í Safnahúsi Borgarfjarðar stendur til 3. desember. Safnahúsið er á Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi og er opið frá 13-18 alla virka daga og til kl. 20 á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. |
|
Gestir skoða myndband Óskars Þórs.
Ómar Arason afhendir Jónu Guðbjörgu Torfadóttur skjalaverði skjöl Ara Guðmundssonar. |