Þjóðskjalasafn Íslands Borgarskjalasafn Reykjavíkur Héraðsskjalasafn Kópavogs Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar Héraðsskjalasafn Akranesskaupstaðar Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar Héraðsskjalasafn Dalasýslu Héraðsskjalasafn Ísfirðinga Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Héraðsskjalasafn Siglufjarðar Héraðsskjalasafn Svarfdæla Héraðsskjalasafnið á Akureyri Héraðsskjalasafn Þingeyinga Héraðsskjalasafn Austfirðinga Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja Héraðsskjalasafn Árnesinga

Þjóðskjalasafn Íslands

Úr bréfabók 9. læknishéraðs 1879-87

Bréfabók 9. læknishéraðs er áhugaverð heimild um aðstæður lækna og heilsufar hér á landi á síðari hluta 19. aldar, nánar tiltekið var 9. læknishérað Húnavatns sýsla fyrir austan Blöndu, og Skagafjarðar sýsla, að frá skildum Fells Barðs og Knappstaða prestaköllum.

Árni Jónsson (31.7.1851-3.3.1897) fæddur í Vatnsdalshólum var 15. apríl 1879 skipaður héraðslæknir í 9. læknishéraði.

Í bréfabók þessari hefur Árni fært þau bréf sem hann hefur sent og einnig bókað bréf sem hann hefur fengið. Innihald er stuttlega nefnt. Áberandi eru bréf vegna samskipta við yfirvöld, amtmann, landlækni og sýslumann. Fljótt á litið virðast áhyggjum embættismannsins svipa til þess sem nú gerist. Fyrirspurn um launagreiðslur, um tækjakaup, um hvernig skuli brugðist við þeim sem án réttinda stunda lækningar o.fl.

Á bls 17-21 eru varúðarrelgur gegn mislingum. Þær varpa skýru ljósi að aðstæður og þekkingu þess tíma. Hér skal vitnað til hluta þeirra:

"Varúðarreglur
gegn mislingum
1. júní

Smitefni mislinganna er í líkamlegu ástandi en eigi loftkynjað. Smittanin verður því á þann hátt, að þeir, sem smitta flytja smittefnið beinlínis til þeirra, er verða fhyrir smittuninni, en það flyst eigi af sjálfsdáðum í loftinu bæja eða sveita á milli.

Til þess að verja heimili fyrir smittefninu þarf því eigi annað, en varast með öllu að nokkur maður, nokkurt kvikindi eða nokkur hlutur, sem geti haft smittefnið í sér fólgið nái að komast í samsnertingu við nokkur eða nokkurt á heimilinu.

Þess vegna skulu menn af fremsta megni varast allar samgöngur við bæji þá, er mislingar hafa heimsótt, alla þá bæji er minnsti grunur er um, að með samgöngum kunni að hafa fengið smittefnið, þó það sé eigi komið í ljós. – Það getur leynt sér viku eða hálfsmánaðartíma – og við alla þá bæji, er liggja í kring um mislingabæji og grunaða bæji.

Verði samgöngur af einhverri orsök nauðsynlegar, skal með öllu varast að láta nokkurn mann frá mislingabæ eða grunuðum bæ koma inn í mislingafríann bæ; svo meiga eigi heldur menn frá mislingafríum bæjum koma inn í mislingabæji eða grunaða bæji. Menn eiga að heilsast með því að kastast á kveðjum en eigi með handabandi eða kossi. Varast skulu og þeir, er frá mislingabæjum eru aða grunuðum bæjum að setjast á eða snerta nokkurn hlut á hlaði eða í kringum mislingafría bæji, svo þeir eigi láti smittefnið eftir sig liggja. Sömu varúð skulu og menn frá mislingafríum bæjum viðhafa ef þeir koma á mislingabæji eða grunaða bæji svo að þeir eig hafi smittefnið á braut með sér..."


Þessi frásögn er lengri en hér er staðar numið í þeirri von að áhugasamir geti lesið skriftina á frumritinu.

Skoða sýnishorn úr bréfabókinni