Heiti Varmár má rekja til þess að heitir lækir runnu í ána frá hverauppsprettum ofarlega í Reykjahverfi. Vegna þessa var hitastigið í ánni hæfilegt til ýmissa nota. Seinnihluta 19. aldar kenndi Björn Bjarnarson í Gröf (nú Grafarholt í Reykjavík) piltum sund í Varmá og gerði sundpoll við einn volga lækinn.
Að frumkvæði Lestrarfélags Lágafellssóknar var stofnað Laugarfélag í Mosfellssveit árið 1895. Félagsgjaldið var 1 króna en utanfélagsmenn gátu fengið að nota laugina á sunnudögum klukkustund í senn, en konum og körlum var ekki hleypt samtímis í laugina.
Björn Þorláksson frá Varmá hafði lært ullarvinnslu í Noregi og taldi hann mikla möguleika við Álafoss þar sem áin hentaði vel til ullarþvotta, hún fraus ekki á veturna og brekkan skapaði hentugan halla til að knýja tóvinnuvélar með vatnsafli úr ánni. Árið 1896 þegar ullarverksmiðjan á Álafossi tók til starfa var Varmá virkjuð fyrir ofan fossinn. Við þetta myndaðist lón, um 100 metrar á lengd og 20 metra breitt og reyndist það hinn ágætasti sundstaður.
Sigurjón Pétursson keypti verksmiðjuna árið 1917 og hóf hann uppbyggingu íþróttalífs á staðnum. Stofnaði hann íþróttaskóla á Álafossi árið 1928 og gegndi útilaugin í Varmá þar lykilhlutverki. Voru smíðaðir tveir dýfingarpallar og var reglulega keppt í sundi, dýfingum og sundknattleik. Fór fyrsta keppni í sundknattleik á Íslandi þar fram árið 1928. Íþróttaskólinn var starfræktur til ársins 1940 og enn í dag má sjá leifar af dýfingarpöllunum á árbakkanum.
Á hernámsárunum voru átta herbúðir upp með Varmá. Ekki er vitað hve margir hermenn voru í þessum búðum, en talið er að alls hafi um 10.000 hermenn verið í Mosfellssveit þegar mest var í alls 34 herbúðum. Sóttu hermennirnir mikið að Álafossi og notuðu laugina til sunds, baða og þvotta.
Smám saman fór áin að kólna þar sem hverirnir ofar í Reykjahverfinu voru virkjaðir og heitu lækirnir hættu að streyma í ána. Upp úr því lagðist sundiðkun í ánni af. Þess má geta að Varmá og hverirnir umhverfis hana hafa verið notaðir til upphitunar húsa og einnig gert ylrækt í Reykjahverfi mögulega allt fram á þennan dag.
Norræni skjaladagurinn 13. nóvember 2010