Upphaf ylræktar á Íslandi má rekja til ársins 1913 er Óskar Halldórsson sem hafði stundað garðayrkjunám í Danmörku, flutti með sér matjurtir í pottum og setti niður í heita moldina við Reyki í Reykjahverfi. Hann útbjó nokkurskonar fyrirrennara gróðurhúss en hann lýsir því svo: „Ég hlóð upp bakkana á hveralækjunum og setti járnplötur yfir þá, setti mold ofaná plöturnar og umgerðir og gluggakarma ofaná það. Þetta urðu vermireitir…“ (Mosfellsbær, saga byggðar í 1100 ár, bls. 273)
Fyrsta gróðurhúsið reis á Reykjum í Reykjahverfi árið 1923. Var það gert að frumkvæði Guðmundar Jónssonar skipstjóra og mágs hans Bjarna Ásgeirssonar alþingismanns en báðir bjuggu þeir á Reykjum og höfðu þeir mikinn áhuga á ylrækt. Helsti hvatamaður þeirra var Dani, Jóhannes Boeskov að nafni, sem starfaði sem vinnumaður á Reykjum. Á garðyrkjusýningu sem haldin var í Reykjavík 1924 mætti Jóhannes með afurðir gróðurhússins eða 14 tegundir af matjurtum og blómum sem vöktu töluverða athygli enda ýmislegt sem ekki hafði sést áður.
Jóhannes stofnaði árið 1926 garðyrkjubýlið Blómvang sem telst vera eitt fyrsta nýbýlið sem byggðist eingöngu á ylrækt.
Norræni skjaladagurinn 13. nóvember 2010