Á 18. öld urðu mikilvægar framfarir í mælingum á sviði náttúrufræði. Franskur náttúrufræðingur René Antoine Ferchault de Réaumur (1683-1757) bjó til hitamæli sem byggir á því að hafa frostmark vatns sem 0° og suðumark 80°. Þessi mælir er nefndur í bréfi Skúla Magnússonar (1711-1794) sem hér er birt. Íslendingar nútímans þekkja betur Celsius mælieiningarnar sem kenndar eru við sænska stjörnufræðinginn Anders Celsius (1701–1744), sem bjó til hitamæli og mælieiningar við hann kenndar og hefur frostmark vatns 0° og suðumark 100°.
Hér má sjá hitamæli Reaumur.
Í minnisblaði (pro memoria=til minnis) Skúla til danskra yfirvalda í Kaupmannahöfn, frá í maí 1780, kemur fram að hann hafi fundið í fórum Bjarna Pálssonar heitins landlæknis (1719-1779) tæki til veðurmælinga sem hann hafi átt þátt í að senda Bjarna árið 1777. En Bjarni hafi ekki getað notað tækin vegna veikinda. Skúli, búsettur í Viðey, segist hafa stundað mælingar á frosti og hita (”frost og heede”) í vetur með mæli Reaumurs auk þess að mæla loftbreytingar með loftvog Lerra frá Kaupmannahöfn. Hann vill láta stjórnarskrifstofuna vita af þessu og að hann hafi hug á að halda þessum mælingum áfram.
Þá segist Skúli hafa haft samband við stjörnufræðinginn á Bessastöðum eða Lambahúsum (Eyjólfur Jónsson Johnsonius 1735-1775 á Lambhúsum). Og að þeir hafi ákveðið að hafa bera saman bækur sínar um hið markverðasta í mælingum sínum.
Uppskrifaður texti Skúla eftir frumskjalinu er svofelldur:
Pro memoria
Ibland afg. landpysici Poulsens efterladenskab fandt jeg sidstleden höst de meteorologiske instrumenter som Provisor Cappel og jeg tilskickede ham fra Kiöbenhavn 1777 og han ikke formedelst paakomne sygdom kunde betjene sig af, ei helder andre her til lands. Disse instrumenter tog jeg afvigte höst til mig og har til min egen tidsfordriv i vinter i fölge Reaumurs termometrum observeret frost og heede, ligesaa luftens forandringer i fölge Lerras Kiöbenhavnske barometrum. Dende min begyndelse eller som en pröve understaar jeg mig underdanigst her ved at insinuere til det höjlovlige collegium, saa vidt termometrum angaar og skulle de naadige og höje herrer finde nogen behag der i da vil jeg tillægge de barometriske og siden med begge aarlig continuere.
Med den astronomiske observator paa Bessested eller Lambhus har jeg her om udladt mig og vi foresadt os ved förste lejlighed at confrontere det os daglig syntes merkværdigt og især for det förste instrumenternes forhold imod hver andre.
Vidöe den 1te maj 1780.
S. Magnussen
Til Det kongelige Vestindiske og Gvineiske rente-, samt general told cammer
Norræni skjaladagurinn 13. nóvember 2010