Peningabréf sent landfógeta af Stefáni Bergssyni frá Þverá í Öxnadal 7. júní 1893. Bréfið innihélt 16 kr. sem voru vextir af viðlagasjóðsláni. Frímerkin eru þrjú; eitt 5 aura póstfrímerki og tvö 10 aura póstfrímerki (5 aur grænt tk. 14 x 13 ½, 3 pr. 1891. 2 x 10 aur. rautt tk. 14 x 13 ½, 6. pr. 1889). Bréfið er stimplað í Miklabæ í Skagafirði 16. júní og komustimplað 24. júní 1893. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 33).
Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki
Peningabréf sent landfógeta af Þórði Gunnarssyni í Höfða í Höfðahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu 27. maí 1902. Bréfið innihélt 200 kr. sem voru afborganir fyrir íshússlán úr viðlagasjóði. Frímerkin eru sex 5 aura póstfrímerki (6 x 5 aur. grænt tk. 12 ¾, 3. pr. 1898). Bréfið er stimplað á Grýtubakka en dagsetning er óljós. Það er leiðarstimplað á Vopnafirði 1. júní og komustimplað í Reykjavík 6. júní 1902. Á bakhlið umslagsins er stimpill og innsigli Þórðar Gunnarssonar í Höfða. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 38).
Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki
Bréf sent landfógeta af Hirti Jónssyni lækni í Stykkishólmi dags. 1. mars 1878. Á bréfinu er eitt 20 aura póstfrímerki (20 aur. fjólublátt tk. 14 x 13 ½ 1. pr. 1876). Bréfið er leiðarstimplað í Stykkishólmi 6. mars og komustimplað í Reykjavík 22. mars 1902. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 43).
Sjá bréfið í heild
Skoða stimpil og frímerki
Skoða innsigli
Fylgibréf með peningaböggli sem Jón Jónsson sendi frá Bjarnanesi í Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu 14. janúar 1884. Peningaböggullinn innhélt peningapoka sem í voru 129 kr. auk ávísunar að uphæð 3,50 kr. Á bréfinu eru sex frímerki; fimm 16 aura þjónustufrímerki og eitt 20 aura þjónustufrímerki (5 x 16 aur. rautt tk. 14 x 13 ½, 1. pr. 1876. 1 x 20 aur. grænt tk. 14 x 13 ½, 2 pr. 1881). Bréfið er stimplað á Bjarnanesi 19. janúar og komustimplað í Reykjavík 18. febrúar 1884. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 22).
Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki 1
Skoða stimpla og frímerki 2
Fylgibréf með peningaböggli sem Jón Jónsson sendi frá Bjarnanesi í Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu 31. desember 1880. Peningaböggullinn innihélt peningapoka sem í voru 197 kr. Á bréfinu eru átta frímerki; tvö fimm aura þjónustufrímerki, eitt 10 aura þjónustufrímerki og fimm 16 aura þjónustufrímerki þjónustufrímerki (2 x 5 aur. brúnt tik. 14 x 13 ½, 1. pr. 1878. 1 x 10 aur. blátt tk. 14 x 13 ½ 1. pr. 1876. 5 x 16 aur. rautt tk. 14 x 13 ½, 1. pr. 1876). Bréfið er stimplað á Bjarnanesi 25. janúar 1880. Sjá má brotið innsigli Jóns Jónssonar. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 23).
Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki
Skoða stimpil og tvö frímerki
Peningabréf sent landfógeta af séra Davíð Guðmundssyni á Hofi í Hörgárdal 7. júní 1893. Bréfið innihélt 30 kr. Á umslaginu eru þrjú frímerki; eitt 5 aura þjónustufrímerki og tvö 10 aura þjónustufrímerki (5 aur. brúnt tk. 14 x 13 ½, 3. pr. 1891, 2 x 10 aur. blátt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1884). Bréfið er stimplaðí Miklaholti 16. júní og komustimplað í Reykjavík 24. júní 1893. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 36).
Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki 1
Skoða stimpla og frímerki 2
Skoða innsigli á bakhlið