Elstu frímerki og frímerkjabréf


Peningabréf sent landfógeta Árna Thorsteissyni frá Emil Möller apótekara í Stykkishólmi dags. 26. apríl 1878. Bréfið innihélt 125 kr. ávísun. Frímerkin eru þrjú; tvö 5 aura póstfrímerki og eitt 10 aura póstfrímerki (2 x 5 aur blátt tk. 12 ½, 1. pr. 1876 10 aur. rautt tk. 14x 13 ¾, 1. pr. 1876). Bréfið var stimplað í Stykkishólmi 26. apríl 1878. Einnig má sjá innsigli Emils Möller. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 4).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki


 

Umslag peningabréfs sem Steinn Vigfússon frá Stórugröf í Skagafirði sendi landfógeta 22. maí 1881. Bréfið innihélt vexti af viðlagasjóðsláni að upphæð 24 kr. í gulli og silfri. Frímerkin eru tvö; 5 aura póstfrímerki og 20 aura póstfrímerki (5 aur blátt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1878. 20 aur. fjólublátt tk. 14 x 13 ½, 2 pr. 1881). Umslagið var stimplað í Miklabæ í Skagafirði 3. júní 1881. Á bakhlið eru fimm innsigli póstafgreiðslunnar í Miklabæ. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 13).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpil og frímerki

 

Umslag peningabréfs sem Helgi Jónsson á Tannastöðum í Hrútafirði sendi fyrir hönd ónefnds aðila. Bréfið er ódags. en umslagið stimplað í Strandasýslu 8. júní 1881. Umslagið innihélt einnig 40 kr. í gulli sem voru vextir af viðlagasjóðsláni. Frímerkin eru þrjú; eitt 5 aura póstfrímerki og tvö 10 aura póstfrímerki (5 aur. blátt tk. 14 x 13 ½, 2 pr. 1878. 2 x 10 aur. rautt tk. 14 x 13 ½, 3 pr. 1881. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 14).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki

 

Fylgibréfi með peningaböggli sem Guðmundur Erlendsson á Æsustöðum í Austur-Húnavatnssýslu sendi amtmanni Suður- og Vesturamts 15. júlí 1882. Frímerkin eru þrjú; 5 aura póstfrímerki, 10 aura póstfrímerki og 20 aura póstfrímerki (5 aur blátt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1878. 10 aur rautt tk. 14 x 13 ½, 3 pr. 1881. 20 aur fjólublátt tk. 14 x 13 ½, 1. pr. 1876). Bréfið er stimplað á Sveinsstöðum 19. júlí 1882. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 18).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki

 

Umslag af fylgibréfi með peningaböggli sem Jón Guttormsson frá Hjarðarholti í Dalasýslu sendi landfélga Árna Thorsteinssyni 10. janúar 1883. Bréfið innihélt 130 kr. sem voru vextir og afborganir af viðlagasjóðsláni. Frímerkin eru fjögur; þrjú 5 aura póstfrímerki og eitt 20 aura póstfrímerki. Bréfið var stimplað 20. janúar 1883 í Dalasýslu. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 21).

Skoða stimpla og frímerki


 

Peningabréf sent landfógeta af O[lafi] Thorlacius í Stykkishólmi 10. desember 1884. Í bréfinu var meðfylgjandi peningapoki sem innihélt kr. 97,60. Á framhlið umslagsins vottar O. Finsen póstmeistari að þyngd bréfins sé rétt, 47 kvint. Á bakhlið vottar landfógeti, ásamt tveimur vitnum, hvað talið var upp úr umslaginu. Upp úr því komu kr. 95,60 og var því tveimur krónum minna en þegar bréfið lagði af stað. Frímerkin eru fjögur; eitt 5 aura póstfrímerki og tvö 10 aura póstfrímerki (5 aur. grænt tk. 14 x 13 ½ 2 pr. 1884. 3 x 10 aur. rautt tk. 14 x 13 ½ 4. pr. 1886). Bréfið er stimplað í Stykkishólmi 10. desember 1884. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 26).

Sjá bakhlið bréfisins
Skoða stimpla og frímerki
Skoða peningapoka
Skoða innsigli á peningapoka