Elstu frímerki og frímerkjabréf


Í Þjóðskjalasafni eru varðveittur fjöldi gamalla og sjaldgæfra frímerkja frá fyrstu árum íslenskrar frímerkjasögu. Frímerkjaútgáfa hófst hér á landi með tilskipun um póstmál 26. febrúar 1872. Tóku fyrstu íslensku frímerkin, skildingafrímerki, gildi 1. janúar 1873. Þau urðu ógild haustið 1876 þegar auramerki komu í staðinn.

Flest frímerkjanna hafa varðveist sökum þess að fyrir daga umslaga voru frímerki límd á bréfin sjálf sem brotin voru saman og lokað með lakkinnsigli. Bréf sem send voru embættismönnum voru síðan geymd í skjalasöfnum þeirra eins og opinber fyrirmæli kváðu á um. Hér verða sýnd 24 þessara frímerkjabréfa. Nokkur eru með einstökum frímerkjum þ.e. einu þekktu merkjunum.


Bréf til amtmanns Vesturamats frá Jóni Jónssyni, hreppsnefndarmanni í Neshreppi innri í Snæfellsnessýslu dags. 14. ágúst 1875. Frímerkin eru tvö 2 skildinga almenn frímerki (2 x 2 sk. tk. 14 x 13 ½). Bréfið var stimplað í Miklaholti 27. ágúst og komustimplað í Reykjavík 1. september 1875. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1a. Bréf nr. 1).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki


 

Bréf til sýslumannsins í Húnavatnssýslu frá Pétri Péturssyni biskupi dags. 9. apríl 1873. Frímerkið er 4 skildinga þjónustufrímerki (1 x 4 sk. tk. 12 ¾). Bréfið var stimplað í Reykjavík 7. maí 1873.
(ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2a. Bréf nr. 1).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpil og frímerki

 

Bréf til landfógeta frá skrifstofu Eyjafjarðarsýslu ritað á gamlársdag 1874. Frímerkin eru fjögur 4 skildinga þjónustufrímerki (4 x 4 sk. tk. 12 ¾). Burðargjaldið var 12 skildingar fyrir þrefalt bréf auk ábyrgðargjalds sem var 4 skildingar enda innihélt bréfið 12 rd. og 24 sk. sem voru tekjur dómsmálasjóðs af Eyjafjarðasýslu og Akureyrar árið 1874. Bréfið var stimplað á Akureyri 4. mars 1875.
(ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2a. Bréf nr. 11).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki

 

Fylgibréf með peningaböggli til landfógeta frá skrifstofu Suður-Múlasýslu dags. 23. júlí 1875. Bréfritari er Jón Johnsen. Frímerkin eru þrjú; eitt 4 skildinga þjónustufrímerki og tvö 8 skildinga þjónustufrímerki (1 x 4 sk. tk. 12 ¾ + 2 x 8 tk. 14 x 13 1/2). Burðargjald var 16 skildingar fyrir böggulinn auk ábyrgðargjalds sem var 4 skildingar eða samtals 20 skildingar. Bréfið var stimplað á Egilsstöðum 26. júlí 1875. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2a. Bréf nr. 15).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki

 

Fylgibréf með peningaböggli til landfógeta frá skrifstofu Strandasýslu dags. 24. mars 1873. Bréfritari er S. Sívertsen. Böggullinn var innsiglaður og innihélt 283 rd og 15 sk. sem voru opinber gjöld úr Strandasýslu í jarðabókarsjóð landsins fyrir reikningsárið 1. apríl 1872 til 31. mars 1873. Frímerkin eru 20; eitt 4 skildinga þjónustufrímerki og 19 8 skildinga þjónustufrímerki (1 x 4 sk. tk. 12 ¾ + 19 x 8 sk. tk. 14 x 13 x ½. Eitt 8 sk. rifið). Burðargjald var 144 skildingar fyrir böggulinn auk 12 skildinga ábyrgðagjalds eða samtals 156 skildingar. Bréfið er leiðarstimplað í Hjarðarholti 1. maí og komustimplað 3. maí í Reykjavík. Einnig má sjá heilt innsigli Strandasýslu. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2a. Bréf nr. 21).

Sjá bréfið í heild
Skoða stimpla og frímerki


 

Umslag peningabréfs sem Oddur Jónsson frá Dagverðareyri í Eyjafirði sendi Árna Thorsteinssyni landfógeta 19. ágúst 1879. Umslagið innihélt einnig vexti af viðlagasjóðsláni, samtals 8 kr. Frímerkin eru tvö; 5 aura póstfrímerki og 20 aura póstfrímerki (5 aur blátt tk. 14 x 13 ½, 1. pr. 1876. 20 aur. fjólublátt tk. 14 x 13 ½, 1. pr. 1876). Umslagið var stimplað á Akureyri 21. ágúst 1879. Á bakhlið umslagsins eru fimm innsigli sem sýna upphafsstaði Odds Jónssonar. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 8).

Sjá bakhlið bréfisins
Skoða stimpla og frímerki