Elstu frímerki og frímerkjabréf


Peningabréf sent landfógeta af Birni Bjarnasyni sýslumanni í Dalasýslu 28. mars 1893. Bréfið innihélt 128 kr. Á umslaginu eru þrjú frímerki; tvö 5 aura þjónustufrímerki og eitt 20 aura þjónustufrímerki (2 x 5 aur. brúnt tk. 14 x 13 ½, 3. pr. 1891, 20 aur. grænt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1881). Bréfið er stimplað í Hjarðarholti 29. mars og komustimplað í Reykjavík 1. apríl 1893. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 37).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki


 

Peningabréf sent landfógeta af Sigurði Sverrissyni sýslumanni frá Bæ í Hrútafirði 7. apríl 1893. Á umslaginu eru þrjú frímerki; eitt 5 aura þjónustufrímerki og tvö 10 aura þjónustufrímerki (5 aur. brúnt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1884, 2 x 10 aur. blátt tk. 14 x 13 ½, 3. pr. 1891). Bréfið er stimplað í Strandasýslu 18. apríl og komustimplað í Reykjavík 24. apríl 1893. Á bakhlið er innsigli Sýslumannsins í Strandasýslu. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 38).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki

 

Fylgibréf með peningaböggli sem Jón Johnsen sýslumaður á Eskifirði sendi landfógeta, líklega fyrstu mánuði ársins 1885. Böggullinn innihélt peningapoka sem í voru 686 kr. Á umslaginu eru átta frímerki; eitt 5 aura þjónustufrímerki, tvö 10 aura þjónustufrímerki og fimm 20 aura þjónustufrímerki (5 aur. brúnt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1884. 2 x 10 aur. blátt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1884, 5 x 20 aur. grænt tk. 14 x 13 ½, 2. pr. 1881). Bréfið er stimplað á Eskifirði 3. mars og komustimplað í Reykjavík 6. apríl 1885. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 41).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpil og frímerki

 

Bréfspjald sem Jón Jónsson, ritari landshöfðingja, sendi til Íslandsráðuneytisins í Kaupmannahöfn 29. nóvember 1879. Þetta er fyrsta bréfspjaldið (póstkortið) sem vitað er um að hafi verið sent með áprentuðu frímerki frá Íslandi. Á spjaldinu er eitt 5 aura frímerki (5 aur. áprentað og álímt frímerki, 5 aur. blátt 14 x 13 ½, 2 pr. 1878). Sérstakt burðargjald fyrir bréfspjald til Danmerkur tók ekki gildi fyrr en 18. maí 1880, eða tæpum sex mánuðum eftir að bréfspjaldið var sent. Bréfspjaldið er stimplað í Reykjavík 10. desember 1879, leiðarstimplað í North Shields í Englandi 23. janúar 1880 og komustimplað í Kaupmannahöfn 28. janúar 1880. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.1b. Bréf nr. 60).

Sjá bakhlið bréfspjaldsins
Skoða stimpla og frímerki 1
Skoða stimpla og frímerki 2

 

Umslag útkrotað með útreikningum, póststimplað í Reykjavík 10. mars 1900. Utanáskrift er Landfógeti. Á bakhlið er innsiglisstimpill Reykjavíkur. Umslagið lá með yfirlitsreikningi um kirkju- og kennslumál 1899 í skjalasafni Landshöfðingja. Frímerkin á umslaginu eru tvö; 3 aura og 5 aura þjónustufrímerki (3 aur. gult tk. 12 ¾, pr. + 5 aur. brúnt tk. 14 x 13 ½ 3. pr. 1891). Þetta er eina bréfið sem þekkt er með 3 aura gróftökkuðu þjónustufrímerki. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 96).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki
Skoða stimpil á framhlið
Skoða stimpil á bakhlið


 

Umslag útkrotað með útreikningum, póststimplað í Reykjavík 19. nóvember 1901. Utanáskrift er Landfógeti. Hliðarstimpill í neðra vinstra horni "Síðdegis". Á bakhlið er stimpill landshöfðingja. Umslagið lá með alþingisreikningi 1901 í skjalasafni Landshöfðingja. Á umslaginu er eitt 4 aura þjónustufrímerki (4 aur. grátt tk. 12 ¾, 1. pr. 1900). Þetta er eina þekkta umslagið með 4 aura gróftökkuðu þjónustufrímerki. (ÞÍ. Frímerkjasafn. 4.2b. Bréf nr. 95).

Sjá bakhlið bréfsins
Skoða stimpla og frímerki
Skoða stimpila landshöfðingja á bakhlið