Forsíða Leiðari Um skjaladaginn Dagskrá Getraun Skjalasöfnin Veðurslóðir
  • Barðinn sekkur á Faxaflóa.
  • Barðinn sekkur á Faxaflóa.
  • Barðinn sekkur á Faxaflóa.

Að morgni 21. ágúst árið 1931 var togarinn Barðinn RE 274 að veiðum á miðju Sviðinu svokallaða, sem eru þekkt aflamið í Faxaflóa um 7 sjómílur vestur af Akranesi. Barðinn var fallegt skipt og einn af stærstu togurum Íslendinga. „Feikn mikið og gott sjóskip, mannaíbúðir hinar vistlegustu“, skrifaði Hallfreður Guðmundsson (f. 1896 – d. 1989) síðar hafnsögumaður á Akranesi, í endurminningum sínum, en hann var bátsmaður á Barðanum 1927-1929. Þennan dag reyndi hins vegar lítt á sjóhæfni skipsins. Þó að sumri væri tekið að halla þá var blanka logn og glaða sólskin þennan dag.

Benedikt Tómasson skipstjóri í Skuld (f. 1876 - d. 1961) færði dagbækur samviskusamlega. Að kveldi þess dags gefur að líta þessa færslu:

„Föstudagur 21. ágúst 1931. Stilt og bjart veður. Togarinn Barðinn úr Reykjavík ætlaði að sækja mann hingað en fór á Þjótinn og stóð þar. Magni reyndi að ná honum en tókst ekki“.

„22. ágúst. Sama blíða. Barðinn er sokkinn niður að framan aftur að (brú), afturendinn uppí loftið. Skipstjórinn fór suður með MB „Víðir““.

„23. ágúst. NV andvari með sólfari. „Hafþór“ og „Kveldúlfur“ fóru vestur á Ísafjörð að sækja síld fyrir sig til vertíðarinnar“.

„24. ágúst. Vestan strekkingur með kalsa. Varðskipið „Ægir“ kom hingað til að líta á Barðann enn hefur víst ekki litist á því hann fór sem sagt samstundis og hann (Barðinn) alveg orðinn strand“.

Daginn eftir 25. ágúst dró til tíðinda því þá skrifaði Benedikt þetta:

„Sunnan stormur og væta. Nú er Barðinn alveg kominn í kaf og er farið að reka úr honum ímislegt smávegis, tunnur og fl. Aungvu hefur verið bjargað úr honum og er það alveg sérstakt í annari eins blíðu og undanfarið hefur verið. Varðskipið „Ægir“ kom í morgun og leit yfir strandstaðinn og fór svo vestur án þess að gera nokkuð“.

Barðinn var horfinn í sína votu gröf. Um borð voru 800 körfur af fiski, 15-20 tonn af ís og nokkuð af kolum.

Unnið upp úr dagbókum Benedikts Tómassonar í Skuld, en þær eru varðveittar á Héraðsskjalasafni Akraness, og grein Magnúsar Þórs Hafsteinssonar „...fór á Þjótinn og stóð þar...“ sem birtist í Árbók Akurnesinga 2008.

Norræni skjaladagurinn 13. nóvember 2010