Þegar líða tók á sjötta áratug 20. aldar varð ljóst að götur bæjarins, einkum í kringum Tjörnina, voru engan veginn undir það búnar að taka við þeim bifreiðafjölda sem var í bænum. Þess vegna var gripið til þess ráðs, sem hafði reynst vel víða erlendis, að setja upp stöðumæla. Hér fyrir neðan má sjá greinargerð umferðarnefndar um stöðumæla í Reykjavík.
Reglugerð um stöðumæla í Reykjavík var samþykkt í bæjarstjórn 6. desember 1956. Ekki voru allir sáttir við stöðumælana og hér má sjá umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda um stöðumæla og þær aðgerðir sem umferðarnefnd Reykjavíkur vildi framkvæma til þess að ná tökum á umferð í bænum.