Benedikt Sigtryggsson var einn hinna fjögurra heppnu sem hrepptu umræddan styrk til náms í hinu nýja starfi. Eins og sést á afgreiðslu stjórnarráðsins hér (hluti skjalsins) voru hinir styrkþegarnir þeir Magnús Thorberg, Halldór Skaptason og Gísli J. Ólafsson.
(Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Hér sést umsókn Gísla J. Ólafssonar, sonar Jóns Ólafssonar ritstjóra. Gísli var síðar landsímastjóri 1927-1931, fyrstur Íslendinga, á eftir Olav Forberg brautryðjandanum. Gísli var einungis 17 ára og ekki sjálfráða þegar þetta er og þurfti faðir hans því að staðfesta umsókina. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Nærri má geta að þessir fjórir umsækjendur hafa verið glaðir við að hljóta hinn eftirsótta styrk. Svarbréf Benedikts til stjórnarráðsins þar sem hann staðfestir að þiggja styrkinn og þakkar fyrir hann er skrifað að mikilli háttvísi. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Gísli J. Ólafsson skrifar samskonar bréf. Staðfestir að þiggja styrkinn og að hann leggi fljótt af stað til Kaupmannahafnar. Gísli starfaði síðan lengi á símstöðinni í Reykjavík. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).