Símamálið er eitt af stóru framfaramálum hinnar nýju heimastjórnar (1904) undir forystu Hannesar Hafstein fyrsta innlenda ráðherrans. Síminn var mikil tæknibylting og kallaði á nýja þekkingu. Við þessu var brugðist með því að styrkja Íslendinga til náms í „firðritun“ Orðin „símritun“ og „ritsímanám“ eru einnig notuð í þessu samhengi. Á fjárlögum fyrir árin 1906 og 1907 var gert ráð fyrir að styrkja fjóra „hérlenda menn“, 1000 kr. til hvers.
Stjórnarráðið auglýsti styrkinn í Þjóðólfi 9. og 15. september 1905 (sjá hér til vinstri). (Þjóðólfur 1905, bls. 165). Uppkast þeirrar auglýsingar er varðveitt í Þjóðskjalasafni. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Umsóknir um þennan styrk til ritsímanáms og fylgiskjöl eru varðveittar. Umsóknirnar eru allmargar og því ljóst að þetta þótti áhugavert eða spennandi nám. Námið átti að stunda átti í Danmörku og strykþegar skuldbindu sig til að vinna í 5 ár við "firðritun" að því loknu. Benedikt Sigtryggsson (26 ára) frá Kasthvammi í Laxárdal í Þingeyjarsýslu sótti um styrk. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Með umsókn Benedikts fylgdi fæðingarvottorð frá sóknarprestinum í Þverársókn. Önnur skrifstofa stjórnarráðsins, atvinnu- og samgöngumáladeild, fór með símamálið í heild sinni. Hjá skrifstofunni fékk auglýsingin og umsóknirnar málsnúmerið 577. Stimpillinn sýnir að málið er fært í fyrstu bréfabók skrifstofunnar sem tók til starfa í febrúar 1904. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Með flestum umóknum fylgdu meðmæli. Benedikt Jónsson frá Auðnum í Laxárdal, þekktur maður á sínum tíma, skrifar vinsamleg meðmæli um nafna sinn, sem þrír aðrir mætir menn staðfesta. Meðmælin og staðfestingar þeirra eru á einni og sömu pappírsörkinni. Hér eru meðmæli Benedikts Jónssonar og orð Péturs Jónssonar þingmanns Suður-Þingeyinga. Staðfestingar hinna tveggja á meðmælum Benedikts má sjá hér (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).
Að síðustu er svo vottorð Gísla Péturssonar læknis á Húsavík um að ekkert sé að heilsufari Benedikts Sigtryggssonar. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 577).