Lagning símans


Mynd þessi sýnir hestalest fara frá Reyðarfirði sumarið 1906 með búnað í símalínuna. Líklega eru hestarnir klyfjaðir kössum með "isolatorum, krókum, hettum og fleiru" sem nefnd eru í 2. grein hinna prentuðu tilboðsblaða. (Mynd í eigu Pósts og síma. Ljósmyndari P. Smith. Heimir Þorleifsson, Söguþræðir símans (1986), s. 94.).

 

Jón Jónsson læknir á Vopnafirði og Sigurður P. Sivertsen prestur að Hofi gerðu, með fulltingi sveitunga sinna, tilboð í flutninga á efni í „Vopnafjarðarkaflann“. Kr. 6.18 fá þeir fyrir að flytja hvern staur (gr. 1). Staurana skyldu þeir leggja í kesti með 150 og 160 faðma bili eins og mælt er fyrir í 3. grein. Alls munu þeir hafa flutt 1285 staura. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 697).

 

Þetta er kortið sem sýnir þá leið sem Jón og Sigurður skyldu fara haustið 1905 með efnið og skilja það eftir samkvæmt fyrirmælum tilboðsins. Það lá svo þar um veturinn og beið vinnuflokkanna sem lögðu línuna sumarið 1906. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 697)

 

Jón læknir gerði úttekt á einni staurasendingu áður en að flutningum kom. Í sendingunni sem landað var á Vopnafirði, voru 55 staurar frá Sorø í Danmörku og 377 frá Namsos í Noregi. Staurarnir reyndust heldur þyngri en ráð var fyrir gert, lengri og sverari. Þeir félagar óskuðu því eftir þriðjungs hækkun á flutningsgjaldi fyrir hvern staur. Hækkunin var samþykkt eins og sést í 1. grein. Upphaflega buðu þeir kr. 4.12 fyrir að flytja hvern staur. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 697).

 

Hér má sjá grafið fyrir símastaur sumarið 1906. (Mynd í eigu Pósts og síma. Ljósmyndari P. Smith. Heimir Þorleifsson, Söguþræðir símans (1986), s. 95.).