Landsími Íslands var opnaður í Reykjavík 29. september 1906 og á því aldarafmæli. Í Þjóðskjalasafni eru til skjöl um þessa atburði. Árið 1905 hafði Alþingi samþykkt samning sem Hannes Hafstein ráðherra gerði við Stóra norræna ritsímafélagið árið áður um lagningu sæsíma landsins og kæmi á land á Seyðisfirði. Þá var eftir hið mikla verkefni að leggja landlínu milli Seyðisfjarðar og Reykjavíkur. Þetta var ein stærsta samgöngubót hér á landi sem ráðist hafði verið í. Símamálið var afar fyrirferðamikið á þingi og umdeilt.
Leitað var til norsku símastjórnarinnar um aðstoð við lagningu símans. Olav Forberg símaverkfræðingur (síðar landsímastjóri) kom til Ísland 1905 til að meta aðstæður. Sumarið 1906 var svo 614 km löng símalína lögð milli Seyðisfjarðar og Reykjavíkur um Norðurland. Unnu meira en 200 Norðmenn við verkið. og fjöldi Íslendinga einnig. Kortið sýnir leið símans frá meginlandi Evrópu og til Íslands.
(ÞÍ. Teikningasafn).
Flutningar símastaura og annars efnis til lagningar símalínunnar var mikið og erfitt verk þegar skip, hestar og menn voru flutningatækin. Efnið (símastaurar, vír o.fl.) kom með gufuskipum frá Noregi og Danmörku. Því var skipað upp á hentugum stöðum frá Seyðisfirði og norður um til Reykjavíkur. Efnisflutningar á landi voru svo boðnir út. Tilboðin eru varðveitt og má hér sjá tilboð Daníels Daníelssonar ljósmyndara í Reykjavík um að flytja efni í línuna frá Reykjavík að Eyri við Hvalfjörð. Sjá kort hér að neðan. Í endanlegum samningi um flutninginn eru reyndar uppskipunarstaðirnir Reykjavík, Grafarvogur, Kollafjörður, Vallá og Eyri. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 697)
Þetta kort er nokkurs konar vinnuteikning og sýnir hvar símalínan lá milli Reykjavíkur og Saurbæjar í Hvalfirði. Hún var lögð í sjó frá Eyri yfir í Katanes. Á kortið er tilgreint og merkt hvar setja átti efni í línuna, staura o.fl. Eftir þessu skildu Daníel og hans menn fara. Efst í upptalningunni vinstra megin er Reykjavík. Þar segir að setja skuli á land og flytja frá Reykjavík og dreifa með ákveðnum bili að stað merktum a, 55 staurum sem eru 6,4 m á lengd og 20 staurum sem eru 8.5 m á lengd. 380 kg af þræði eiga að fylgja með. Reyndar er strikað yfir þessa upptalnigu og sérstakur efnislisti látinn fylgja með. (Stjórnarráð Íslands II. Db. 1, nr. 697)