Þjóðskjalasafn Íslands


Laugavegi 162, 105 Reykjavík

Þjóðskjalasafn Íslands er með opið hús að Laugavegi 162. Þema dagsins er „Verslun og viðskipti“. Sjá dagskrá.

Héraðsskjalasafn Akranesskaupstaðar


Dalbraut 1, 300 Akranes

Á Héraðsskjalasafni Akranesskaupstaðar verður opið frá kl 11:00 - 14:00 á skjaladaginn og þar verður heitt á könnunni. Þar verður sýning um verslanirnar BOCO og Axelsbúð og formleg afhending á skjalasafni Axelsbúðar, en hluti þess barst safninu nú á dögunum.

Héraðsskjalasafn Dalasýslu


Miðbraut 11, 370 Búðardalur

Á laugardaginn verður opið hús hjá Héraðsskjalasafni Dalasýslu á annarri hæð Stjórnsýsluhússins, Miðbraut 11, kl 13:00 - 18:00. Lítil sýning tengd verslun og viðskiptum í Dölum. Sjá nánar.

Héraðsskjalasafnið á Akureyri


Brekkugötu 17, 600 Akureyri

Héraðsskjalasafnið á Akureyri verður með sýningu af þessu tilefni sem hefst mánudaginn 14. nóvember og stendur til 25. nóvember. Þar verða tínd til nöfn á sem flestum verslunum er starfræktar hafa verið á Akureyri allt frá lokum einokunartímans til ársins 1980 og þær staðsettar í hús. Um er að ræða gríðarlegan fjölda verslana og engan veginn hægt að gera þeim öllum skil og þess vegna verður leitað til alls almennings um viðbótarupplýsingar.

Sýningin mun standa til 25. nóvember og er opin mán.- fös kl. 10:00-19:00 og lau. kl. 11:00 -16:00.

Norræni skjaladagurinn 12. nóvember 2011