Forsíða Leiðari Um skjaladaginn Dagskrá Getraun Skjalasöfnin Veðurslóðir

Félag héraðsskjalavarða á Íslandi verður með opið hús í Borgarskjalasafni, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, Reykjavík, laugardaginn 13. nóvember 2010 kl 13:00 til 17:00 undir kjörorðinu Eins og vindurinn blæs… . Fimmtán héraðsskjalasöfn taka þátt í opna húsinu með einum eða öðrum hætti. Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra, sýningu á skjölum, ljósmyndasýningu frá héraðsskjalasöfnum, kórtónleika, sögufélög kynna rit og mynddiska, barnakrókur þar sem börnin fá blöðru og litabók, kynnt verður starfsemi héraðsskjalasafnanna og fleira. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Fyrirlestar og uppákomur

Kl 13:00  „Í jöklanna skjóli“ - myndbrot um horfna lífshætti í Skaftafellssýslum.
Kl 13:30Setning sameiginlegs skjaladags héraðsskjalasafna.
Kl 13:35Söngfélag Skaftfellinga syngur nokkur lög. Kórstjóri Friðrik Vignir Stefánsson.
Kl 14:00Gunnar Hersveinn: Þjóðgildi Íslendinga.
Kl 14:30Hrafn Sveinbjarnarson: „Að lífið sé skjálfandi lítið gras.“ Börnin úr Hvammkoti og Kópavogslækurinn.
Kl 15:00Svanhildur Bogadóttir: „Einangrunin rofin“. Skjalasöfn í fortíð, nútið og framtíð.
Kl 15:30Sævar Logi Ólafsson: Loftvarnir í Reykjavík.
Kl 16:00Guðrún Nína Petersen: Fljúgandi furðuhlutir og skemmtileg ský.
Kl 16:30Ragnhildur Bragadóttir: Lán er að hann þig fái ... Um ástina í póstkortum og bónorðsbréf til ungrar Reykjavíkurfrauku um aldamótin 1900.

Ljósmyndasýning

Fimmtán héraðsskjalasöfn hafa lagt til ljósmyndir úr söfnum sínum og úr daglegri starfsemi. Oft segja myndir meira en þúsund orð og á undanförnum árum hefur fjöldi ljósmynda verið afhentur til héraðsskjalasafnanna. Mikil vinna er framundan við skráningu mynda og eru gestir hvattir til að leggja okkur lið við skráningu.
Þau söfn sem leggja til myndir eru:

Skjalavarsla - góð ráð og leiðbeiningar

Sérfræðingar héraðsskjalasafnanna gefa góð ráð og leiðbeiningar um skjalavörslu.

Í sýningarkössum verða skjöl frá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafni Árnesinga, Héraðsskjalasafni Kópavogs, Héraðsskjalasafni Mosfellsbæjar og Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Einnig verða sýnd ástarbréf úr einkaeigu.

Sögufélög, Sögufélag Borgfirðinga og Sögufélag Árnesinga kynna starfsemi sína. Skemmtilegar bækur á góðu verði.

Ættfræðiþjónustan ORG verður á staðnum - ef þú vilt vita meira um afa og ömmu…

Í barnahorni gefst börnum kostur á að lita myndir og fá hengdar upp á vegg meðan foreldrar skoða sýningar. Boðið verður upp á litabækur og blöðrum meðan birgðir endast. Tröllasögur fyrir þau börn sem þora.

Kaffihorn, þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti og eitthvað fyrir börnin líka.

Allir velkomnir - ókeypis aðgangur.

Norræni skjaladagurinn 13. nóvember 2010