Fyrsta kvikmyndasýningin á Íslandi 27. júní 1903


Árið 1902 reistu góðtemplarar á Akureyri hús fyrir starfsemi sína. Þetta var fyrsta samkomuhúsið í bænum. Húsið, sem var einlyft með lágu risi, var byggt á lóð rétt fyrir utan barnaskólann á Barðsnefi. Brátt kom það í ljós að húsið var of lítið og því réðust templarar í að byggja stórhýsi á sömu lóð og eldra húsið hafði staðið á en það var flutt út á Oddeyri. Nýja húsið var byggt árið 1906 og er þekkt sem Samkomuhúsið og hefur hýst starfsemi Leikfélags Akureyrar um árabil. Engin mynd er til af eldra húsinu en það var þar sem fyrst var sýnd kvikmynd hér á landi. Meðal myndanna sem sýndar voru var fyrsta science fiction myndin sem gerð var, A Trip to the Moon, eða Le Voyage dans la lune, frönsk mynd frá árinu 1902.


A Trip to the Moon, eða Le Voyage dans la lune


Frétt um væntanlega sýningu birtist í Norðurlandi 27. júní 1903 (sama dag og fyrsta sýning fór fram): "Vér vekjum athygli á auglýsingu þeirra Fernanders og Hallseths um myndasýninguna, sem halda á í kvöld og næstu daga, þangað til Skálholt fer, í Goodtemplarahúsinu. Alveg fyrirtaksvel hefur verið látið af sýningum þeirra í norskum, sænskum og finskum blöðum, sagt meðal annars, að fullorðið fólk sitji hugfangið eins og börn af fegurðinni og ráði sér þess á milli ekki fyrir hlátri. Blöðin nefna fjölda af þeim myndum sem sýna á, myndir, sem verða afbragðsfallegar með þessari vél Edisons, sem notuð er, svo sem dýragarðinn í Lundúnum með urmul af dýrum, ferðina til tunglsins, járnbrautarlestirnar, sýningar úr 1001 nótt, menn á sundi o.fl. o.fl. Einkum verða myndirnar hugnæmar fyrir það, að hreyfingarnar sjást, alveg eins og þær eru í lífinu. Þeir, sem sækja þessar sýningar, fá sjálfsagt mjög góða skemtun."



Höfundurinn virðist hafa haft rétt fyrir sér því í næsta tölublaði Norðurlands 4. júlí 1903 segir um myndasýningarnar: "Þær urðu ekki nein vonbrigði. Þeir herrar Fernander og Halseth urðu að sýna myndirnar þrisvar á sunnudaginn og tvisvar á mánudag og þriðjudag. Með öðru móti ekki unt að fullnægja eftirspurninni. Þrátt fyrir loftleysi og feikihita - þar sem loka varð gluggum og dyrum til þess að gera aldimt inni - sat þar húsfyllir í hvert sinn og skemti sér hið bezta. Ýmsir tók það jafnvel fram, að betur hefðu þeir ekki skemt sér á æfi sinni".

Þeir Fernander og Hallseth fóru síðan til Ísafjarðar og Reykjavíkur héldu sýningar þar.


Fyrsta kvikmyndasýningin á Íslandi


Þetta efni er frá:
Héraðsskjalasafninu á Akureyri


 

Athugasemdir gesta


Skráðu athugasemd


Nafn:

Póstfang:
Athugasemdir:

Umsjón