Héraðsskjalasafn Árnesinga, Austurvegi 2, Selfossi.
Austurvegi 2
800 Selfoss
Sími: 482 1259
Rafpóstur
Afgreiðslutími:
Lesstofa Héraðsskjalasafns Árnesinga er opin almenningi mánudaga, þriðjudaga og föstudaga kl 14:00-18:00 og fimmtudaga kl. 14:00-19:00.
Héraðsskjalasafn Árnesinga, skammstafað HérÁrn, var formlega stofnað árið 1985. Umdæmi þess er Árnessýsla með 10 sveitarfélög og 12.789 íbúa þann 1. des. 2002. Við stofnun safnsins voru sveitarfélögin 18. Héraðsnefnd Árnesinga, sem er samvinnunefnd sveitarfélaga í Árnesþingi, á og rekur Héraðsskjalasafn Árnesinga. Geymslurými safnsins er um 1200 hillumetrar og af þeim nýtir HérÁrn nú um 700 en bókasafnið afganginn.
Skjöl sveitarfélaga eru fyrirferðamest í geymslum safnsins en þar eru einnig skjöl einstaklinga félaga og fyrirtækja. Meðal félaganna eru skjöl ungmennafélaga á safnsvæðinu.
Héraðsskjalavörður er Björn Pálsson.