Flugfélag Íslands


Douglas C-47A Dakota flugvél Flugfélags Íslands TF-ISG, Glitfaxi
Douglas C-47A Dakota flugvél Flugfélags Íslands TF-ISG, Glitfaxi á flugvellinum í Eyjum með Helgafell og gömlu "flugstöðina" í baksýn. Farþegar og áhöfn fyrir framan vélina. Glitfaxi fórst 31. janúar 1951, út af Vatnsleysuströnd í áætlunarflugi frá Vestmannaeyjum. Vélin var í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli þegar skall á dimmt él og hún varð að hætta við lendingu. Skömmu síðar rofnaði samband við vélina. Hennar var þá þegar saknað og daginn eftir fundust vísbendingar um að hún hefði farið í sjóinn. Með vélinni fórust 20 manns, 17 farþegar og 3 manna áhöfn.