Loftleiðir
TF-RVM Helgafell Dakota flugvél Loftleiða á flugvellinum í Eyjum með Helgafell í baksýn á fyrstu árum áætlunarflugs til Eyja. Farþegar hafa stillt sér upp fyrir framan vélina. Og þarna sjáum við líka glitta í gömlu aðstöðuna fyrir farþega á vellinum í Eyjum. Það hús þjónaði farþegum allt þar til nýja flugstöðin var tekin í notkun um 1980.
Vél Loftleiða í lágflugi yfir Eyjum á 5. eða 6. áratug síðustu aldar.
TF-RVM Helgafell Loftleiða flýgur yfir Blátind á leið til Reykjavíkur.