Upphaf farþegaflugs til Eyja


Piper Cub J-3 TF-KAK
Eins hreyfils tveggja sæta flugvélin Piper Cub J-3 TF-KAK á flugvellinum í Vestmannaeyjum árið 1946. Miðvikudaginn 14. ágúst 1946 lenti fyrst flugvél á vellinum, sem þá var 250 metra langur. Flugmennirnir voru Hjalti Tómasson og Halldór Bech, flugmenn hjá Loftleiðum. Fjórum dögum áður könnuðu Kristinn Olsen og Hjalti völlinn í farþegaflugi á milli Fagurhólsmýrar og Reykjavíkur. Laugardaginn 24. ágúst lenti TF-KAK aftur á vellinum og voru þar komnir flugmennirnir Ásgeir Pétursson og Kristján Steindórsson.

Avro Anson flugvél Loftleiða TF-RVF
Tveggja hreyfla, átta farþega Avro Anson flugvél Loftleiða TF-RVF á flugvellinum í Eyjum ásamt annarri vél félagsins. Laugardaginn 12. október 1946 hófu Loftleiðir daglegt flug á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Það var TF-RVF sem fór þetta flug og voru flugmenn þeir Kristinn Olsen og Hjalti Tómasson. Í tilefni flugsins var bæjarstjórn og fréttamönnum boðið í útsýnisflug yfir Eyjar. Flugbrautin var þarna orðin 700 metra löng. Mánuði seinna var brautin orðin 800 metrar.

Flugvél á flugi yfir Vestmannaeyjabæ
Flugvél á flugi yfir Vestmannaeyjabæ á fyrstu árum flugsins í Eyjum.