Upphaf landflugs til Eyja
Klemm 25 flugvélin TF-SUX í Vestmannaeyjum haustið 1939. Þetta var í fyrsta sinn sem landflugvél lenti þar. Agnar Kofoed-Hansen og Bergur G. Gíslason lentu í Eyjum 1. október 1939 á Klemm vélinni sem síðar hékk lengi vel í loftinu í flugstöðinni í Eyjum. Þessi flugvél varð innlyksa á Íslandi í byrjun Heimsstyrjaldarinnar síðari og varð eign Flugmálafélags Íslands.