Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja.

Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
 
Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja

Safnahúsinu við Ráðhúströð
Pósthólf 20
902 Vestmannaeyjar
Sími: 481 3194
Fax: 481 1174
Rafpóstur
Vefsetur

Afgreiðslutími:
Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11.00-17.00.

Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja var stofnað 28. mars árið 1980, og er því 26 ára á árinu. Meginviðfangsefni safnsins er söfnun og varðveisla skjala Vestmannaeyjabæjar, félaga, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga í Eyjum, til notkunar fyrir stofnanir sveitarfélagsins, stjórnsýslu, fyrirtæki og einstaklinga. Skjalavörður veitir leiðbeiningar við notkun skjala á lesstofu safnsins, og auk þess er í boði heimildaleit og önnur upplýsingaþjónusta.

Frá upphafi hefur safnið verið til húsa í kjallara Safnahúss Vestmannaeyja og haft þar geymslu, sem nú hefur verið endurnýjuð frá grunni með tilliti til allra öryggisþátta sem í dag er krafist af stofnunum af þessu tagi. Skjalavörður hefur skrifstofu á fyrstu hæð Safnahússins og safnið hefur sameiginlega lessaðstöðu með bókasafninu.

Héraðsskjalavörður er Jóna Björg Guðmundsdóttir.