Samgöngur á Austurlandi


Chervolet 1929
Vörubifreið af gerðinni Chervolet 1929. Myndin sýnir bændur í Jökuldalsheiði á heimleið úr kaupstaðarferð til Reyðarfjarðar árið 1937. Bíllinn var í eigu Kaupfélags Héraðsbúa og var þetta fyrsta ferð hans í Jökuldalsheiði. Bílstjóri var Stefán Guttormsson. Á hlassinu sitja heiðarbændur, f.v. Guðmundur Guðmundsson, Sænautaseli, Guðjón Gíslason, Heiðarseli og Bjarni Þorgrímsson, Veturhúsum. Ljósmyndari er óþekktur.

Ford vörubifreið árgerð 1929
Ford vörubifreið, árgerð 1929, í hlaðinu á Freyshólum á Völlum. Ungi maðurinn heitir Stefán Jónsson. Bifreiðin bar eitt og hálft tonn og var m.a. notuð til aðdrátta við byggingu nýs íbúðarhúss á Freyshólum. Fordinn er enn við lýði og í ótrúlega góðu ástandi þó kominn sé vel á áttræðisaldur. Hefur Stefán afhent Minjasafni Austurlands hann til varðveislu.

Chervolet árgerð 1929
Glæsilegur Chervolet árgerð 1929. Bíllinn var í eigu Georgs Magnússonar á Reyðarfirði. Georg hóf að sýna bíó í heimabyggð sinni haustið 1939. Samhliða sýndi hann kvikmyndir í nærliggjandi þorpum og ók með sitt ferðabíó milli staða.

Slíkar glæsikerrur þóttu auka kvennhylli manna:
Hversu löng sem leiðin er
lífs á vegi hálum.
Bílinn held ég bjargi þér
best í kvennamálum.

Amerískur Essex árgerð 1926
G-443 var amerískur af gerðinni Essex árgerð 1926. Upphaflega var bílinn fólksbíll, en smíðaður hefur verið á hann pallur. Ástæðan gæti verið sú að á skömmtunarárunum var bensínskammtur ríflegri fyrir bíla sem notaðir voru til flutninga. Bifreiðin var upphaflega í eigu Valdimars Long, kaupmanns í Hafnarfirði, sem gaf hana vini sínum, Tómasi Zoëga, á Norðfirði. Pilturinn undir stýri er sonur Valdimars, Ásgeir Long kvikmyndagerðarmaður.

Tjaldbúðir  Reyðfirðinga og Héraðsmanna við Brúarjökul árið 1938
Tjaldbúðir Reyðfirðinga og Héraðsmanna við Brúarjökul árið 1938. Bílarnir eru frá Kaupfélagi Héraðsbúa á Reyðarfirði og var ferðin farin að frumkvæði Þorsteins Jónssonar, kaupfélagsstjóra. Það eru bílstjórar hópsins, Stefán Guttormsson og Sigþór Bjarnason, sem taka sólarhæðina af þaki vörubílsins sem var af gerðinni Ford og bar númerið U-29. Byggt var yfir pallinn „boddí“ sem var með blæjum og gekk yfirbygging af þeirri gerð undir nafninu „Þjóðhátíðarboddí“.

Bifreið Antons Ólasonar
Bifreið Antons Ólasonar á Seyðisfirði af gerðinni T-Ford, líklega árgerð 1920. Myndin mun vera tekin á árabilinu 1927-1928. Litli drengurinn á myndinni hét Haraldur Hermannsson, betur þekktur sem Daddi í Elverhøj.
Fordinn minn er bestur bíla
ber af öllum hér
Æðisgenginn, eins og píla
yfir landið fer.

Hákon Aðalsteinsson.