með mjólkurbílnum


Mjólkurflutningar í Eyjafirði

Mjólkurflutningar úr Svarfaðardal til Akureyrar hófust sumarið 1934. Sú frumraun gaf það góðan árangur að menn vildu halda þeim áfram og næstu árin þar á eftir urðu flutningarnir stöðugt meiri, þrátt fyrir slæma vegi og ýmsa farartálma. Fyrst í stað var mjólkin aðeins flutt á sumrin en það var mönnum keppikefli að mjólkin væri flutt árið um kring. Svarfdælingar stofnuðu Mjólkurdeild Svarfdæla árið 1936 og hófu einnig reglulega mjólkursölu á Dalvík það ár. Alltaf var þó mjólk flutt til Akureyrar, jafnvel sjóleiðis ef landflutningar lágu niðri vegna ófærðar. Svarfdælingar vildu þó gjarnan koma á fót mjólkurvinnslu á Dalvík en það var ekki fyrr en um og eftir 1950 sem slíkar hugmyndir voru aflagðar. Mjólkursamlag KEA yfirtók mjólkursölu á Dalvík árið 1943.

Það var útibú KEA á Dalvík sem annaðist flutningana í byrjun og lagði til bíl og bílstjóra. Fyrsti mjólkubíllinn var Chevrolet árg. 1934. Hann var með bensínvél og fimm manna húsi. Sá næsti var einnig Chervolet en með 10 manna húsi en hann var keyptur árið 1938 eða 1939. Enn var Chervolet keyptur árið 1941 og var sá með 10 manna húsi, sá síðasti sem notaður var bæði til mann- og mjólkurflutninga í dalnum. Um 1950 voru trukkarnir keyptir en það voru þrír GMC bílar.

Um 1945 var farið að ræða um að flutningarnir væru það umfangsmiklir að rétt væri að stofna sérstakt félag um flutningana og því var það að Mjólkurflutningafélag Svarfdæla var stofnað árið 1950. Félagið annaðist reksturinn uns Mjólkursamlag KEA tók alla mjólkurflutninga á samlagssvæðinu í sínar hendur árið 1976.


Sjá meira um mjólkurflutninga í Eyjafirði:

  • Brynja Grétarsdóttir, 1983: „Mjólkurflutningar í Svarfaðardal“. Súlur 13 (25.-26) bls.56-80.
  • Þorlákur Hjálmarsson, 1980: „Mjólkurflutningar“. Súlur 10 (19-20) bls. 90-96.
  • Hskj Ak. H-11/62 Saurbæjarhreppur. Ágrip af sögu bílflutninga í Saurbæjarhreppi eftir Hjalta Finnsson í Ártúnum. (Birtist einnig í Súlum 1987, 14 (27) bls. 79-102).
  • Hskj.Ak. G-65/14 Úr fórum Ingólfs Pálssonar frá Uppsölum. Mjólkurflutningar úr Öngulsstaðahreppi.
  • Hskj.Ak. G-145/96 Úr fórum Aðalgeirs Ólafs Jónssonar frá Hólum. Yfirlit yfir ökumenn bílsins Hrepps og mjólkurflutninga 1925-1931.
 
A-918
Mjólkurbíllinn A-918.

A-1418
Mjólkurbíllinn A-1418.

Mjólkurflutningar í ófærð
Mjólkurflutningar í ófærð.

Mjólkurflutningar í ófærð
Mjólkurflutningar í ófærð.

Bílar í eigu Mjólkurflutningafélags Saurbæjarhrepps

Tímabil Númer    Lýsing
1943-1948 A-183 Studebaker, hálfkassabíll með 10 manna húsi, keyptur nýr. Yfirbyggður á Akureyri. Moldbrúnn á litinn.
1945-1947 A-168 Chervolet, árg. 1937. Hálfkassabíll með 10 manna húsi og mjög stuttum palli. Litur moldbrúnn. Keyptur gamall.
1945-1948 A-173 Chervolet trukkur með dráttarspili að framan, óyfirbyggða pall og einföldu húsi. Grár að lit.
1946-1955 A-643 Chervolet keyptur nýr. Hálfkassabíll með 10 manna húsi. Yfirbygging ljót.
1948-1956 A-802 Chervolet keyptur nýr. Hálfkassabíll með 10 manna húsi. Litur moldbrúnn.
1952-1961 A-252 Chervolet nýr hálfkassabíll með 12 manna húsi. Litur rauður og hvítur. Fallegur bíll.
1961-1969 A-252 Mercedes bens, nýr frambyggður með einföldu húsi og pallskýli. Rauður.
1969-1975 A-252 Mercedes bens, nýr hálfframbyggður með einföldu húsi og pallskýli. Litur öskugrár
1956-1967 A-818 Volvo, nýr. Hálfkassabíll með 12 manna húsi. Mjög sterkur bíll. Litur rauður og hvítur.
1967-1974 A-818 Volvo, nýr. Frambyggður með einföldu húsi (veltihúsi) og pallskýli. Hægt að læsa drifi. Rauður.
1960-1961 A-1580 Þetta númer mun hafa verið notað á nýjan bíl sem sóttur var suður og síðan flutt á gamlan sem seldur var fljótlega.
1961-1974 A-1623 Reo Studebaker árg. 1954, þriggja „hásinga“ hertrukkur. Drif á öllum hjólum. Einfalt hús og yfirbyggður járnpallur. Litur rauður.
1967-1970 A-3187 Sami bíll og volvoinn með 12 manna húsinu.
1971 A-412 Mun vera sami bíll og A-2091 sem var Reo Studebaker árg. 1954. Etv. notaður eitthvað en sennilega fyrst og fremst ætlaður í varahluti.


Tekið úr: Hskj Ak. H-11/62 Saurbæjarhreppur. Ágrip af sögu bílflutninga í Saurbæjarhreppi eftir Hjalta Finnsson í Ártúnum. (Birtist einnig í Súlum 1987, 14 (27) bls. 79-102).

Upplýsingar um myndirnar fjórar hér til vinstri: Hskj.Ak. G-74/18 Úr fórum Jóhannesar Óla Sæmundssonar, skólastjóra og námsstjóra. Ljósmyndir vegna mjólkurflutninga, teknar af JÓS.

 
Fargjöld með mjólkurbílnum
Mjólkurbílsfargjöld milli Skáldstaða og Akureyrar 1950-1960. Hskj.Ak. G-173/85 Úr fórum Júlíusar Jakobssonar og Kjartans Júlíussonar á Skáldstöðum, Saurbæjarhr.
Mjólkurflutningar úr Öngulsstaðahreppi
Ingólfur Pálsson: Mjólkurflutningar úr Öngulsstaðahreppi. Hskj.Ak. G-65/14 Úr fórum Ingólfs Pálssonar frá Uppsölum.
 
Samningur milli mjólkurnefndar Fram-Hörgdæla við Baldur Þorsteinsson og Gest Júlíusson um mjólkur-, vöru- og mannflutninga frá Bústöðum um Hallfríðarstaðamela til Akureyrar (1946, 1947 og 1948). Hskj.Ak. G-179/14 Úr fórum Árna J. Haraldssonar bónda Hallfríðarstöðum.