með bátnum


Um aldamótin 1900 var Eyfirðingum mjög umhugað að koma betra lagi á samgöngumál sín. Allir Eyfirðingar voru sammála um nauðsyn strandsiglinga um fjörðinn. Fáir áttu meiri hagsmuna að gæta í þessum efnum en einmitt Akureyringar. Ef efla átti kaupstaðinn sem verlunarmiðstöð héraðsins urðu sem flestir að eiga greiða leið þangað. Stundum kom það líka fyrir að síldin veiddist aðeins inn í fjarðarbotninum og skipti þá miklu fyrir útgerð við fjörðinn að greiðlega gengi að koma henni til sjómanna er bjuggu utar. Bæjaryfirvöld voru fús til þess að leggja fram eitthvert fé en á móti kæmi styrkur úr landssjóði.

Með nokkurri einföldun má segja að áætlunarferðir á Eyjafirði hafi hafist sumarið 1906 þegar mótorbáturinn Guðrún hóf siglingar milli Akureyrar, Siglufjarðar, Grímseyjar og Húsavíkur, með nokkrum viðkomustöðum á milli. Guðrún var í siglingum á firðinum sumrin 1906 og 1907.

Farmiði með Guðrúnu
Hskj.Ak. G-50/4. Úr fórum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Úr sjóferð með Guðrúnu
Norðri, 28.sept. 1906.
 

Um sumarið 1908 var gufubáturinn Agder í siglingum milli Akureyrar, Sauðárkróks og Raufarhafnar. Báturinn var í eigu Gufubátsfélags Norðlendinga en að baki því stóðu nokkrir frammámenn á Akureyri. Um sumarið rakst báturinn á sker og var nærri sokkinn en síldveiðibáturinn Leslie var leigður í staðinn. Í stað Agder keypti félagið gufubátinn Jörund og hófust siglingar hans vorið 1909. Þær stóðu í sex sumur eða til 1915.

Svo er að sjá sem eftir það hafi áætlunarferðir á firðinum verið meira inni á borði sýslunefndar og Alþingis heldur en bæjarstjórnarinnar. Við tekur tímabil póstbátanna, þar sem einstaklingar taka að sér siglingar með fjárstuðningi Alþingis og póstmálayfirvalda.

Framan af voru siglingarnar bundnar við sumarmánuðina. Sá sem fyrstur var með póstbátinn var Bjarni Einarsson en hann hafði umsjón með ferðunum 1913-1928. Bátar hans voru Hrólfur kraki og Vonin.





Árið 1928 tók Jón Björnsson við áætlunarsiglingunum og sinnti þeim allt til áramóta 1942-1943 en þá tók sonur hans, Steindór, við. Bátarnir voru Unnur 1928-31, Langanes 1932, Drangey 1933-37, Ester 1938-46, Drangur (I) 1946-1959, Drangur (II) 1959-1982. Drangur III kom til landsins 1982 en hann var í ferðum til 1985. Sæfari kom svo 1990.

Agder
Hskj.Ak. G-50/4. Úr fórum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
 
Áætlun Unnar árið 1931
Hskj.Ak. G-50/4. Úr fórum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Áætlun Drangs árið 1964
Hskj.Ak. A-17j/8 Íþrótta- og tómstundamál - Bæklingar.
 

Áætlun Stellu árið 1917
Hskj.Ak. G-50/4 Úr fórum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.

Stella var smíðuð í Danmörku árið 1912, úr eik og furu. Verslun Snorra Jónssonar eignaðist skipið árið 1916 og átti allt til 1930.

Hríseyjarferjan
Það mun hafa verið 1946 sem Hríseyjarhreppur gerði samning við einstaklinga um rekstur ferju. Keyptur var trillubáturinn Sævar frá Hauganesi. Ferðir voru frá upphafi allan ársins hring en mis tíðar eftir árstíðum. Sævar var endurnýjaður árið 1957 og aftur 1979. Núverandi Sævar var smíðaður árið 1999.

Sjá meira um efnið í:

  • Elín Björg Ingólfsdóttir, 1999. „Hrísey“. Súlur 17. árg. (30). bls. 3-38.
  • Jón Hjaltason, 2000. Saga Akureyrar 3. bindi. Akureyrarbær, Akureyri.
  • Haraldur Jóhannsson, 2003: „Samgöngur“. Grímsey og Grímseyingar. Akrafjallsútgáfan, Akranes. bls. 233-238
  • Hjörtur E. Þórarinsson, 1994: Saga sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu 1874-1989. I. bindi.
  • Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Akureyri.
 

Farseðil
Hskj.Ak. 2006/50 (aðf.nr., óskr.) Úr fórum Björgvins Sigmundssonar frá Miðvík.