Ásgeir stóri
Gufuskipið Á. Ásgeirsson, eða Ásgeir stóri eins og skipið var kallað á Ísafirði, er fyrsta gufuknúna millilandaskipið sem Íslendingar eignast. Ásgeir G. Ásgeirsson kaupmaður á Ísafirði keypti það fyrir eigin reikning árið 1893. Skipið sigldi með vörur til og frá Ísafirði á vorin og sumrin en tók saltfisk að hausti og sigldi með hann á markað í Suður-Evrópu. Ljósm.: Björn Pálsson/Ljósmyndasafnið Ísafirði.