Ungir hjólreiðamenn í Hófgerði
Ungir hjólreiðamenn í Hófgerði.

Ljósmyndadeild Héraðsskjalasafns Kópavogs

Héraðsskjalasafn Kópavogs varðveitir ýmis ljósmyndasöfn er tengjast Kópavogsbæ og sögu hans og tekur slík söfn til varðveislu. Ljósmyndir fylgja einnig oft skjalasöfnum í meiri eða minni mæli, bæði frá stofnunum Kópavogsbæjar og í öðrum skjalasöfnum.

Þar sem ljósmyndir af ýmsum gerðum eru um margt viðkvæmari en venjuleg skjöl á pappír er þeim sinnt sérstaklega og búið um þær með það fyrir augum að þær endist sem lengst.

Á næstu síðu er sýnishorn af safnkosti ljósmynda-deildarinnar sem tengist þema skjaladagsins um samgöngur. Athugið að fyrst þarf að bíða í smástund á meðan myndirnar hlaðast inn og síðan birtast þær sjálfkrafa hver á fætur annarri. Sýningin heitir: „Á ferð um Kópavog“.