Almenningssamgöngur voru mjög af skornum skammti fyrstu árin sem Kópavogur var sjálfstætt sveitarfélag, en Kópavogshreppur var stofnaður 1948 og varð kaupstaður árið 1955.
Sá félagsskapur sem varð til þess að Kópavogshreppur var stofnaður út úr Seltjarnarneshreppi, Framfarafélagið Kópavogur, lét sig almenningssamgöngur varða eins og önnur framfaramál.
Á aðalfundi Framfarafélagsins Kópavogs 5. mars 1950 bar Ásgeir Blöndal fram fyrirspurn um strætisvagnaferðirnar sem hófust en höfðu lagst niður aftur. Var því svarað til af oddvita Kópavogshrepps "að öll tilhögun ferðanna frá hendi Póst- og símamálastj. hefði verið þannig að óhugsanlegt hefði verið að þær gætu borið sig." Í lok fundarins var svohljóðandi tillaga Lárusar Salómonssonar samþykkt með öllum greiddum atkvæðum:
Fjölmennur fundur í Framfarafélaginu Kópavogur, samþykkir að skora á Póst- og símamálastjóra að halda uppi strætisvagnaferðum í hreppnum, og verði þær samræmdar við þarfir hreppsbúa betur en verið hefur.
Munu þetta líklega hafa verið Hafnarfjarðarvagnar sem komu við á miðjum Kópavogshálsinum. Á síðustu árum hreppsins tóku þeir stundum á sig krók fram á nes eða á hálsinum.
Á árunum 1951-1953 komu fram ýmsar hugmyndir um strætisvagnaferðir á vegum hreppsins. Þeim Guðmundi Kolka og Ingjaldi Ísakssyni var falið að vinna að byggingu biðskýlis við Hafnarfjarðarveg. Fyrsta biðskýlið var reist árið 1951 af Pétri Filippussyni og Gylfa Hinrikssyni.
Árin 1954-1956 héldu Landleiðir uppi stopulum áætlunarferðum milli Kópavogs og Reykjavíkur og fóru þá nokkuð um byggðina í Kópavogi.
Strætisvagnar Kópavogs voru loks stofnaðir og hófust ferðir á vegum þeirra síðla árs 1956.
Ólafur Jónsson var formaður nefndar bæjarráðs Kópavogs 1956 sem undirbjó stofnun Strætisvagna Kópavogs og sá svo um að koma þeim á laggirnar. Hann varð fyrsti forstöðumaður Strætisvagna Kópavogs hinn 1. mars 1957. Þann dag hófust reglulegar strætisvagnaferðir um Kópavog.
Fyrstu 2-3 mánuðina voru notaðir tveir leiguvagnar frá Vestfjarðaleiðum, en í maí 1957 voru tveir strætisvagnar í eigu Kópavogsbæjar teknir í notkun. Vögnum fjölgaði upp frá því og reksturinn varð umfangsmeiri m.a. bættist skólaakstur við hann. Áhaldahús Kópavogs fylgdi rekstri strætisvagnanna. Árið 1972 varð Karl Árnason forstöðumaður Strætisvagna Kópavogs.
Upp úr 1984 hófst samráð við önnur bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu um samhæfingu og samvinnu um almenningssamgöngur. Lyktaði því með því að byggðasamlagið Almenningsvagnar tók við rekstri strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur og hófst akstur á þess vegum 15. ágúst 1992. Árið 2001 tók byggðasamlagið Strætó við verkefnum Almenningsvagna og Strætisvagna Reykjavíkur og sér það enn um rekstur strætisvagna í Kópavogi og á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Ritaskrá:
Héraðsskjalasafn Kópavogs:
4/2005 Framfarafélagið Kópavogur, fundargerðabók AA/1 bls. 78-79.
Andrés Kristjánsson. "Strætisvagnarnir". (bls 227-232). Saga Kópavogs. III Þættir úr kaupstaðarsögunni 1955-1985. Ritstj. Andrés Kristjánsson og Björn Þorsteinsson. Kópavogi 1990.
Andrés Kristjánsson. "Atvinna, þjónusta og samgöngur" (bls. 202) Saga Kópavogs. II Frumbyggð og hreppsár 1935-1955. Kópavogi 1990.