Fyrsti bílinn kom til landsins árið 1904, hins vegar rann bílaöldin ekki upp á Íslandi fyrr en tæpum áratug síðar. Ljóst var að það þyrfti að setja nýjar reglur um umferð þessara nýju farartækja eins og bréf bæjarfógeta frá árinu 1914 til borgarstjóra gefur til kynna. Strax sama ár var gerð viðbót við gildandi lögreglusamþykkt frá 1890 sem tók m.a. til bifreiða.