Þótt járnbrautin hefði verið rifin árið 1928 voru uppi hugmyndir um járnbrautarsamgöngur til og frá Reykjavík. Hér fyrir ofan má sjá uppdrátt frá árinu 1925 sem sýnir járnbrautarstöð við núverandi Hlemmtorg. Einnig var gert ráð fyrir járnbrautarstöð í tillögu að skipulagsuppdrætti frá árinu 1927 og átti hún að rísa við austurenda Hringbrautar (núverandi Snorrabraut).