Staðsetning Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni hefur orðið mönnum að deiluefni. Margir telja að flugvöllurinn sé arfleið frá seinni heimsstyrjöldinni enda voru það Bretar sem lögðu völlinn. Hins vegar var staðsetning Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni ákveðin 10. mars 1940 þegar bæjarráð Reykjavíkur féllst á tillögu skipulagsnefndar um flugvöll á afmörkuðu svæði sunnan Vatnsmýrar. Áður hafði bæjarráð veitt leyfi til byggingar flugskýlis í Vatnsmýrinni árið 1937 og var þar til vísir að flugvelli. Gerð varanlegs flugvallar í Vatnsmýrinni var rétt nýhafin af íslenskum áhugamönnum um flugmál þegar breski herinn hóf flugvallargerð á svipuðum stað í byrjun október 1940. Hér gefur að líta greinargerð Gústafs E. Pálssonar verkfræðings um mismunandi kosti flugvallarstæða fyrir Reykjavík frá árinu 1939.
Heimildir:
Arngrímur Sigurðsson: Það verður flogið… Flugmálasaga Íslands í 75 ár. Ágrip helstu atburða 1919-1994. Reykjavík 1994, bls. 14-19.
Eggert Nordahl: Flugsaga Íslands í stríði og friði. Reykjavík 1991, bls. 40-125.
BsR. Málasafn borgarstjóra. Askja. 906. Aðfnr. 3398.