Fyrsta aðsetur íslenska póstsins í Reykjavík, sem var stofnaður 1. janúar 1873, var hús í eigu Martinus Smith sem stóð á þeim tíma í Hafnarstræti 18. Þar var áður afgreiðsla danska póstsins á Íslandi. Hinn 10. febrúar 1874 auglýsti Óli Finsen póstmeistari í Þjóðólfi flutning póststofunnar til íbúðarhúss hans sjálfs á Austurvelli 1, sem síðar var breytt í Pósthússtræti 11. (Þór Þorsteinsson (2005), „Hvar var fyrsta íslenska pósthúsið í Reykjavík“, Frímerkjablaðið, 1. tbl., 7. árg., bls 12-13).
Árið 1898 flutti póstafgreiðslan í gamla barnaskólahúsið (síðar lögreglustöðin við Pósthússtræti). Núverandi pósthús var byggt 1915. Myndin er tekin fyrir 1908. (Heimir Þorleifsson (2004), Póstsaga Íslands 1873-1935, bls. 45). Síminn var í upphafi (1906) í sama húsi.
Pósthúsið þurfti margs við eins og vænta má og jók mönnum atvinnu eins og þessi reikningur yfir viðhald pósthússins 1899-1900 sýnir. (ÞÍ. Landfógetasafn).
Thomsensverslun var ein helsta verslun Reykjavíkur í upphafi 20. aldar. Viðskipti Pósthússins við þessa ágætu verslun sjást hér á hluta reiknings fyrir árið 1900. (ÞÍ. Landfógetasafn).
Til Reykjavíkurdómkirkju greiddi Pósthúsið kirkjugjald, rúmlega 14. kr. en það var og er hluti opinberra gjalda. (ÞÍ. Landfógetasafn).
Annað gjald af sama meiði er sótaragjald sem fyrir árið 1899 var 7. kr. (ÞÍ. Skjalasafn Landshöfðingja).