Flestir kannast við fyrirbærið símagabb. Stundum er um tiltölulega saklausa stríðni að ræða en stundum má tala um misnotkun tækninnar og stundum getur tæknin brugðist. Þeir sem urðu fyrir áreitni af þessu tagi snúa sér til símafyrirtækisins og óskuðu aðstoðar við að upplýsa gabbið. Landssíminn var einn um símrekstur á þeim tíma sér hér er fjallað um. Starfsmenn Símans brugðust við kvörtunum með því að fylgjast með hringingum í númer þess sem kvartaði og reyndu að miðla málum.
Í skjalasafni Landsímans má finna skýrslur sem gerðar hafa verið um slík mál. Hér eru nokkur dæmi sýnd. Persónugreinanlegar upplýsingar eru fjarlægðar vegna þess að gögnin eru ung. Þetta bréf var sent til konu í Reykjavík í desember 1957 eftir að hún hafði verið uppvís að því að hringja itrekað í kynsystur sína, einnig hér í bæ, sem samkvæmt skýrslu Símans sagði: "þegar hún svaraði hafi engin viljað svara henni heldur bara stunur og smátikk. Sagði hún að þetta væri búið að koma alloft fyrir og væri af þessu mikið ónæði." Starfsmenn Símans höfðu samband við hinn meinta sökudólg en hún vildi lítið kannast við málið. Þar kom að bréfið hér að ofan var sent. Það urðu þó ekki lyktir málsins eins og næsta skjal sýnir.
(ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).
Málið vatt upp á sig og áður en yfir lauk komu margir að því. Þetta bréf er hluti skýrslu Símans og skýrir sig sjálft. Það má sýnast undarlegt að ekki hafi fyrr beinst grunur að því að eitthvað væri að tækjabúnaði.
(ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).
Lokaskráning í málinu er frásögnin af viðgerð á símtæki hins meinta sökudólgs, frúar í miðbænum, sem var að því er virðist höfð fyrir rangri sök eftir allt saman.
(ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).
Í janúar 1958 kvartar maður í Reykjavík yfir ónæði sem hringingar konu valda sér að næturlagi. Símastarfsmenn komast að því um hvaða númer er um að ræða án þess að gefa það upp við þann sem kvartaði og var það reglan. Ekki er að sjá að framhald hafi orðið á málinu.
(ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).
2. október 1958 er gerð skýrsla um tvær ólíkar kvartanir. Síðari kvörtunin er um gabbhringingu til Slökkviliðsins, það var kallað út án tilefnis. Slíkt var talið það alvarlegt að númerið sem hringt var úr var gefið upp. Ekki er vitað hvernig Slökkviliðið tók á málinu.
(ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).
Fyrra tilvikið er lokasþáttur í máli sem átti sér nokkurra mánaða sögu. Að endingu upplýstist að unglingar voru ítrekað að gera at en húsráðendur höfðu til þessa ekki kannast við neitt. Starfsmaður Símans skrifar á bakhlið skýrslunnar hér að ofan: „...leiddi henni [móður unglinganna] fyrir sjónir kurteislega að þessar gabbhringingar yrðu að hætta. Hún var hin besta og sagðist hafa orðið þess vör að stelpurnar og kunningjastúlka þeirra væru að gabba einhverja konu vestur í bæ. - Bæjarsíminn bað frúna endilega gefa þeim áminnigu og leiða þeim fyrir sjónir að það gæti haft í för með sér að síminn yrði tekinn ef áframhaldandi gabbhringingar ættu sér stað. Konan tók þessu vel eins og áður er sagt.“ (ÞÍ. Skjalasafn Landsíma Íslands. Gabbhringingar).