Um skjaladaginn
Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember.
Upphaflega var ákveðið var að annað hvert ár skyldi dagurinn helgaður sameiginlegu norrænu þema. Þess á milli áttu söfnin að hafa frjálsar hendur. Árið 2006 var ákveðið að hafa sameiginlegt þema þriðja hvert ár og skyldi þemað ákveðið og kynnt á norrænum skjaladögum árið áður.
Mörg skjalasöfn opna hús sín fyrir almenningi á þessum degi og vekja athygli á tilteknum skjalaflokkum, oft með því að setja upp sýningar á völdum skjölum.
Í ár er þema skjaladagsins „Konur og kvenfélög“. Hægt er að lesa nánar um þemað í leiðara skjaladagsins og kanna hvað er á dagskrá hjá þeim skjalasöfnum sem hafa opið á skjaladeginum.
Þótt lög gildi um opinbera skjalavörslu er ekki nægilega áréttað að einstaklingar í félögum, stofnunum og fyrirtækjum ráða miklu um hvað verður um gögn sem þeir vinna með eða varðveita. Eitt markmiða skjaladagsins er að efla vitund fólks um að skjalasöfin séu tryggir vörslustaðir skjala af hvaða tagi sem er. Fundargerðabækur, bréf, myndir og fleiri skjöl eiga erindi á skjalasöfn. Og því er fólk hvatt til að hafa samband við næsta héraðsskjalasafn eða Þjóðskjalasafn ef það hefur undir höndum skjöl sem það veit ekki hvað gera á við.
Tenglar
- Norrænn skjaladagur á Norðurlöndunum
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2008
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2007
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2006
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2005
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2004
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2003
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2002
- Norrænn skjaladagur á Íslandi 2001
- Ríkisskjalasafn Danmerkur
- Ríkisskjalasafn Noregs
- Ríkisskjalasafn Svíþjóðar
- Ríkisskjalasafn Finnlands
- Landsskjalasafn Færeyja
- Landsskjalasafn Grænlands
- UNESCO Archives Portal
- Alþjóða skjalaráðið (ICA)
- Fróðleikur um íslensku skjalasöfnin