Fisktegundir.
Síldarsöltun á Dalvík.
Síldarsöltun við höfnina.
Konur að breiða út fisk.
Fiskibók frá 1942.
Hvað eru margar fisktegundir við Ísland?
Hinn 15. nóvember 2000 var vitað um 360 fisktegundir sem fundist hafa innan 200 sjómílna lögsögunnar við Ísland, sjá nánar á Vísindavef Háskóla Íslands.
Síldarvalsinn
eftir Harald Zóphoníasson alþýðuskáld úr Svarfaðardal
Syngjandi sæll og glaður
til síldveiða nú ég held.
Það er gaman á Grímseyjarsundi
við glampandi kveldsólareld,
þegar hækkar í lest og hleðst mitt skip
við „háfana“ fleiri og fleiri.
Svo landa ég síldinni sitt á hvað
á Dalvík og Dagverðareyri.
Seinna er sumri hallar
og súld og bræla er,
þá held ég fleyi til hafnar.
Í hrifningu skemmti ég mér
á dunandi balli við dillandi spil
og dansana fleiri og fleiri.
Og nóg er um hýreyg'og heillandi sprund
á Dalvík og Dagverðareyri.
Tenglar
Ótal margar íslenskar netsíður tengjast fiskinum og sjónum. Við tókum saman nokkrar til upplýsingar:
Uppskriftir
Innbæjarsaltfiskur (fyrir fjóra)
Rétturinn á rætur í spánskri uppskrift sem birtist á pakkningum frá Ektafiski á Hauganesi. Í fyrsta skiptið sem eldað var þurfti að laga uppskriftina að því sem til var í búrinu og svo vel þótti takast til að þannig hefur rétturinn verið eldaður allar götur síðan við góðar undirtektir. Þetta er einföld og tiltölulega fljótleg uppskrift - lengstan tíma tekur að skera niður lauk og papriku ef ekki eru til staðar vélar til þess.
1 kg sérútvatnaður saltfiskur til steikingar, roðlaus
2 meðalstórir laukar
2 paprikur
200 g tómatpúrre (Slotts er gott)
1/2 peli rjómi (1,25 dl)
Ólívuolía
Laukurinn og paprikan eru skorin smátt eða söxuð og steikt á pönnu í ólívuolíu. Tómatpúrre hrært saman við, rjómanum síðan hellt yfir og hrært vel saman. Þá á þetta að vera orðið að hálfgerðum graut. Roðlausum, fremur smátt skornum fiskbitunum raðað þétt í grautinn þannig að þeir séu á kafi í honum. Látið krauma við vægan hita í 10 - 15 mínútur. Borið fram á pönnunni. Soðnar kartöflur og heitt hvítlauksbrauð haft með og kalt blávatn eða eitthvað annað að drekka.
Fiskur hússins (Poisson a la maison)
Roðflett ýsuflök eru skorin niður í hæfilega bita, sem síðar eru saltaðir.
3 msk. smjör
1 stk. eggjarauða
örlítill pipar
Þessu er hrært saman og fiskurinn síðan smurður með því.
2 msk. rasp
3 msk rifinn ostur
Þetta er sett yfir fiskinn, sem síðan er látinn í smurt eldfast fat. Dálítið auka smjör er sett með. Þessu er stungið inn í ofn og bakað við 225-250 ° hita í 15 mín. Einum pela af rjóma með hökkuðu dilli eða steinselju er hellt yfir fiskinn. Að þeim tíma liðnum er hann settur í ofninn aftur og bakað í 10 mín. Gott er að setja rækjur yfir áður en rétturinn er borinn fram.